Fara í efni

Aukið fjármagn til menningarviðburða á Norðurlandi eystra

Aukið fjármagn til menningarviðburða á Norðurlandi eystra

Unnið er að nýju áhersluverkefni, sem hefur það að markmiði að efla menningar- og listviðburði á Norðurlandi eystra með auknu fjármagni og bættri miðlun.

Hluti af verkefninu felur í sér að auka og eyrnamerkja fjármagn til menningar- og listviðburða innan Uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra í úthlutun vegna ársins 2027. Með því skapast skýrari áhersla á menningu og aukið svigrúm til að styðja bæði ný og rótgróin verkefni. Opnað verður fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð 16. septemeber n.k., en upplýsingar um sjóðinn má finna hér. Uppbyggingarsjóður | SSNE.is

Jafnframt er lögð áhersla á aukna virkni í sameiginlegu viðburðadagatali fyrir landshlutann þar sem menningarviðburðum er miðlað á einum stað. Dagatalið mun nýtast bæði íbúum og gestum og styrkja ímynd Norðurlands eystra sem lifandi menningarsvæðis. Notast verður við viðburðardagatal Markaðsstofu Norðurlands sem má finna hér: Viðburðir | Upplifðu Norðurland

Verkefnið er hluti af Sóknaráætlun Norðurlands eystra og styður við markmið um að efla menningarstarf, styrkja atvinnulíf og auka aðdráttarafl svæðisins. Með verkefninu er stefnt að því að fjölga menningarviðburðum, auka sýnileika þeirra og bæta aðgengi að upplýsingum um viðburði, sem mun hafa jákvæð áhrif á samfélagið í heild.

Getum við bætt síðuna?