Ríkisstjórnin hyggst ráðast í sérstakt átaksverkefni árið 2026 til að efla hleðsluinnviði rafbíla um land allt. Aðgerðirnar eru kynntar í ljósi hækkandi heimsmarkaðsverðs olíu og óstöðugleika á eldsneytismörkuðum, með það að markmiði að flýta orkuskiptum í samgöngum og draga úr berskjöldun heimila og fyrirtækja gagnvart verðsveiflum.
SSNE hefur gefið út nýja skýrslu sem ber heitið Stoðir atvinnu & mannlífs í Langanesbyggð. Í skýrslunni er reynt að gefa nokkra mynd atvinnulífi, innviðum og byggðaþróun á svæðinu og draga fram þau tækifæri sem eru til staðar til að styrkja byggðafestu og skapa sjálfbæra framtíð.
SSNE, í samstarfi við Markaðsstofu Norðurlands og Eim, boðar til rafræns fundar fimmtudaginn 30. apríl kl. 12:00, þar sem starfsemi SSNE, Markaðsstofu Norðurlands og Eims verður kynnt sérstaklega fyrir fulltrúum framboða til sveitarstjórna á Norðurlandi eystra. Fundurinn fer fram á Teams.
Ungmennaþing SSNE 2026 fór fram dagana 14.–15. apríl á Fosshótel Húsavík. Fimmtíu ungmenni mættu frá 10 sveitarfélögum á Norðurlandi eystra ásamt starfsfólki ungmennaráðanna og gestum. Markmið þingsins var að efla ungmennin í hlutverki sínu sem virkir þátttakandi í ungmennaráðum sveitarfélaganna og þannig gera ungmennaráðin gildandi í ákvarðanatöku sveitarfélaganna.
Alls bárust 40 umsóknir í nýsköpunarkeppnina Norðansprotann víðsvegar að af Norðurlandi. Norðansprotinn er nú haldinn í þriðja sinn, en vonandi verður keppnin árlegur viðburður héðan í frá.
Rannís, í samstarfi við utanríkisráðneytið og skrifstofu Uppbyggingarsjóðs EES í Brussel (FMO), stendur fyrir rafrænum kynningarfundi um möguleika íslenskra aðila til þátttöku í verkefnum á vegum Uppbyggingasjóðs EES á nýju sjóðstímabili.