Fara í efni

Fréttasafn

Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des

Fræ – styrkur fyrir ný fyrirtæki og frumkvöðla

Tækniþróunarsjóður býður upp á styrkinn Fræ, sem er undirbúningsstyrkur fyrir einstaklinga og fyrirtæki yngri en fimm ára sem eru með verkefni á hugmynda- eða frumstigi þróunar.
Kynningarfundur verður haldinn mánudaginn 9. febrúar klukkan 15:00-16:30, þar sem áherslur, fyrirkomulag og framtíðarsýn verkefnisins verða kynnt nánar.

Listnám á háskólastigi á Norðurlandi – kynningarfundur

Háskólinn á Akureyri og Listaháskóli Íslands bjóða á kynningu og spjall um nýtt nám.

Pistill framkvæmdastjóra - Janúar

Nýtt ár er hafið og fyrsti mánuður þess flaug hjá. Eins og alltaf var fjöldi verkefna í gangi hjá SSNE í janúar. Þar má meðal annars nefna sameiginlega loftslagsstefnu Norðurlands eystra sem nú er til umfjöllunar hjá sveitarfélögunum, en stefnt er að því að stefnan verði staðfest á Ársþingi SSNE sem haldið verður 26. mars næstkomandi á Dalvík.

Norðanstormur á Akureyri: Hugmyndir, fjármagn og framtíðarsýn mætast

Nýsköpunarráðstefnan Norðanstormur, sem haldin er af SSNE og SSNV, fer fram í Hofi á Akureyri 26. febrúar kl. 9:30–12:00, þar munu frumkvöðlar, fjárfestar og fyrirtæki hittast til að fræðast um helstu leiðir til fjármögnunar og vaxtar.
Getum við bætt síðuna?