Fara í efni

Opnað fyrir skráningu á Krubb hugmyndahraðhlaup

Opnað fyrir skráningu á Krubb hugmyndahraðhlaup

Þér er boðið að taka þátt í hugmyndahraðhlaupi!
Í Krubbi færðu þjálfun í nýsköpunarhugsun í leit að vörum og svörum við áskorunum.

Hér skráir þú þig leiks og færð nánari upplýsingar:
👉https://www.hic.is/krubbur
 

Hvernig fer þetta fram?
Á tveimur dögum færðu þjálfun í aðferðum nýsköpunar til að gera hugmynd að veruleika
✔ færð innsýn í nýsköpun og frumkvöðlastarf
✔ færð leiðsögn frá reynslumiklum þjálfurum
✔ kynnir hugmynd og færð endurgjöf 

Fyrir hverja?

  • Allt áhugasamt fólk, 16 ára og eldra
  • Engin reynsla nauðsynleg
  • Það kostar ekkert að taka þátt
 

Hvaða áskoranir?

  • Áskorun eitt: Hvernig gerum við bæi betri fyrir börn?
    Hvernig getum við gert bæi betri fyrir börn – skapað öruggar götur, græn svæði og fjölbreytt rými til leiks og samveru? Þegar börn fá að taka þátt í að móta sitt eigið umhverfi verða lausnirnar bæði betri og mannúðlegri. Hugmyndahraðhlaupið Krubbur sýnir hvernig skapandi samvinna getur hrundið af stað einföldum en áhrifaríkum breytingum.
     
  • Áskorun tvö: Opin áskorun
    Áskorun þar sem öll mega lofa hugmyndafluginu að ráða og leggja fram hugmyndir – stórar sem smáar. Hér eru engar rangar hugmyndir, aðeins tækifæri til að sjá hlutina í nýju ljósi og prófa nýjar leiðir. Með skapandi hugsun og leik að leiðarljósi verða til lausnir sem annars hefðu aldrei komið upp

     

Hver heldur Krubb 2026 og afhverju?
Hraðið heldur Krubb í samstarfi við SSNE og HA til að efla búsetugæði, nýsköpunarsenuna og frjóvga farveg fjölbreyttra atvinnugreina á Norðurlandi.
 
 
Af hverju heitir þetta eiginlega Krubbur?
Hugmyndahraðhlaupið dregur nafn sitt af Krubbi og svokölluðu Krubbsveðri sem skapast í ákveðinni vindátt á Húsavík. Veðrinu fylgir svo mikill stormur að fólk heldur sig innan dyra meðan hann geysar. Vonast er eftir alvöru Krubbsstormi í hugum þátttakenda meðan á hlaupinu stendur!


Ertu búið/n/nn að skrá þig og langar að byrja strax í dag?

 

 

 

Getum við bætt síðuna?