Fara í efni

Fréttabréf RECET - árangur í orkuskiptum

Fréttabréf RECET - árangur í orkuskiptum

Annað tölublað RECET fréttabréfsins er nú komið út!
Í fréttabréfinu er farið yfir þann árangur sem náðst hefur innan verkefnisins á síðustu misserum og varpað ljósi á fjölbreytt og metnaðarfull verkefni samstarfsaðila víðs vegar um Evrópu.

 

Helstu atriði frá íslensku samstarfsaðilunum:

    • Á Íslandi hafa Eimur, SSNE og Vestfjarðastofa unnið með sveitarfélögum á sínum svæðum að gerð svæðisbundinna áætlana fyrir orkuskipti og loftslagsmál.
    • Á Norðurlandi eystra liggur nú fyrir sam eiginleg loftslagsáætlun allra sveitarfélaga SSNE. Í þeirri vinnu var meðal annars nýttur aðgerðabanki RECET, sem er afrakstur vinnustofa sem Eimur og SSNE héldu haustið 2024.
    • Á Vestfjörðum var farin sú leið að flétta orkuskipta- og loftslagsmál inn í svæðisskipulagsgerð, sem nú er í samráðsferli.
    • Vestfjarðastofa hefur haft forgöngu um innleiðingu græns bókhaldskerfis fyrir sveitarfélög á svæðinu, sem auðveldar eftirfylgni og mat á árangri aðgerða í rauntíma.
    • Á tímabilinu voru haldnir nokkrir viðburðir, þar á meðal:
      • Alþjóðleg ráðstefna í Hofi í maí 2025, skipulögð af Eimi í samstarfi við Íslenska Nýorku, Nordic Energy Research og Umhverfis- og orkustofnun, undir yfirskriftinni Akureyri Energy Seminar.
      • Vefþing um orkuskipti smábáta í apríl 2025, haldið af Eimi og Vestfjarðastofu.
    • Eimur birti einnig olíumælaborð á tímabilinu sem er byggt á greiningu Eims og Eflu á olíusölu eftir landsvæðum á árunum 2010-2020.
  • Á næstu misserum verður aðgerðabanki RECET gerður opinber.

🔗 Hægt er að lesa fréttabréfið á netinu eða sækja PDF-útgáfu hér:

 

Um RECET

RECET er samstarfsverkefni fimm landa og fjölda sveitarfélaga víðs vegar um Evrópu, með Ísland í fararbroddi. Verkefnið miðar að því að efla getu sveitarfélaga og atvinnulífs til að takast á við orkuskipti og móta markvissar orkuskiptaáætlanir fyrir svæðin. RECET er styrkt af LIFE-styrktaráætlun Evrópusambandsins, sem leggur áherslu á umhverfis- og loftslagsmál.

Getum við bætt síðuna?