Fara í efni

Óskum eftir tillögum að áhersluverkefnum fyrir Norðurland eystra 2026

Óskum eftir tillögum að áhersluverkefnum fyrir Norðurland eystra 2026

SSNE óskar nú eftir tillögum að áhersluverkefnum fyrir árið 2026 í samræmi við Sóknaráætlun Norðurlands eystra 2025–2029. Áhersluverkefni eru yfirleitt stærri verkefni sem styðja við framtíðarsýn landshlutans um sterka innviði, blómlegar byggðir, öflugt atvinnulíf og leiðandi umhverfismál.

Við hvetjum stofnanir, félagasamtök og aðra sem vinna að framþróun í landshlutanum til að senda inn hugmyndir að verkefnum sem geta haft raunveruleg og jákvæð áhrif á samfélagið.

Hvað eru áhersluverkefni?

Áhersluverkefni eru verkefni sem:

  • byggja á markmiðum Sóknaráætlunar Norðurlands eystra
  • eru unnin í samstarfi margra aðila
  • hafa skýran samfélagslegan ávinning
  • eru afmörkuð í tíma og fjármögnun
  • geta stutt við nýsköpun, menningu, samfélagsþróun, umhverfismál, innviði eða atvinnulíf

Hvernig sendi ég inn tillögu?

Tillögur skulu skilaðar í gegnum rafrænt eyðublað SSNE:

Senda inn tillögu að áhersluverkefni

Við hvetjum öll sem hafa hugmyndir sem geta styrkt samfélagið, eflt þjónustu, aukið samstarf eða stuðlað að sjálfbærni til að taka þátt.

Allar nánari upplýsingar um áhersluverkefni er að finan hér

Getum við bætt síðuna?