Leynast hæfileikabúnt eins og Laufey Lin, Ólafur Arnalds eða Björk í þínu sveitarfélagi?
Leynast hæfileikabúnt eins og Laufey Lin, Ólafur Arnalds eða Björk í þínu sveitarfélagi?
Sköpun í forgrunni!
- Verkefni sem styrkir unga tónlistarskapendur með leiðsögn fagfólks – frá hugmynd til sviðs.
- Opið er fyrir umsóknir ungmenna í 5.-10. bekk í grunnskólum á Norðurlandi eystra.
Upptakturinn er samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Hörpu og styrkt myndarlega af Sóknaráætlun SSNE. Áhersla er lögð á að hvetja börn og ungmenni til að semja tónlist og styðja þau í fullvinnslu hugmyndar. Ungmennin sem komast áfram vinna að útsetningum undir leiðsögn reyndra tónlistarmanna. Að þessu ferli loknu verða til ný tónverk sem flutt af atvinnuhljóðfæraleikurum á opnum tónleikum 19. apríl kl 17. Þeir eru varðveittir með upptöku í hljóð og mynd sem sýnd verður á RÚV.
Hvað er Upptakturinn?
- Í Upptaktinum er áhersla lögð á að hvetja börn og ungmenni til að semja tónlist og styðja þau í fullvinnslu hugmyndar.
- Ungmenni senda inn lag eða jafnvel hugmynd að lagi á upptakturinn@mak.is. Hugmyndin þarf ekki að vera fullunnin.
- Ungmennin sem komast áfram vinna að útsetningum hugmynda sinna undir leiðsögn reyndra tónlistarmanna í skemmtilegum vinnusmiðjum.
- Að þessu ferli loknu verða til ný tónverk sem flutt verða á tónleikum af atvinnuhljóðfæraleikurum og varðveitt með upptöku á rúv.is.
- Höfundar tónverkanna sitja út í sal og njóta þess að horfa á atvinnuhljóðfæraleikara spila verk þeirra.
- Tónlistarstjóri er engin önnur en hin hæfileikaríka tónlistarkona; fiðluleikari, söngkona og tónskáld, Greta Salóme
Svona tekurðu þátt:

Heimasíða - Fésbók – Instagram - Rúv
- Upplýsingar um Upptaktinn má finna á heimasíðu Hofs: https://www.mak.is/is/menningarhusid-hof/upptakturinn-a-akureyri -
- Facebooksíða Upptaktsins í Hofi: https://www.facebook.com/UpptakturinnAkureyri
- Hlekkur á lög þeirra sem komust áfram í fyrra - https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/upptakturinn-2025-akureyri/38188/bc61m4
- Nánari upplýsingar hér
Yfirlit yfir áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands eystra má finna hér. Nú er einmitt opið fyrir tillögur að verkefnum!