Aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga- málþing
Aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga- málþing
Byggðastofnun, í samstarfi við Veðurstofu Íslands, Skipulagsstofnun og umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytið boðar til málþings í Hofi, Akureyri, þann 12. febrúar nk., undir yfirskriftinni:
Aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga
- Frá áskorunum til aðgerða: leiðarvísir, verkfæri og reynsla sveitarfélaga.
- Frá áskorunum til aðgerða: leiðarvísir, verkfæri og reynsla sveitarfélaga.
Á málstofunni verða þarfir, væntingar og áskoranir íslenskra sveitarfélaga í forgrunni þegar kemur að aðlögun að áhrifum loftslagsbreytinga. Ný og fyrirhuguð verkfæri og leiðbeiningar fyrir sveitarfélög verða kynnt, þar á meðal fyrsta útgáfa leiðarvísis sem byggður er á aðgerð C.10 í byggðaáætlun þar sem aðferðafræði til mótunar aðlögunaraðgerða var þróuð og prófuð í fimm sveitarfélögum. Nýútgefin fyrsta aðlögunaráætlun Íslands verður kynnt, verkfæri í þróun, reynslusögur sveitarfélaga og áskoranir ræddar, ásamt fleiru.
Málþingið er vettvangur til umræðu um raunverulega þörf sveitarfélaga til aðlögunar að áhrifum loftslagsbreytinga, helstu áskoranir og tækifæri þeirra innan málaflokksins og hvernig best megi mæta þörfum sveitarfélaga á næstu árum.
Viðburðurinn verður einnig í streymi.
Skráning er hafin!
Nauðsynlegt er að skrá sig til þátttöku, hvort heldur sem er á staðfund eða í streymi. Hlekkinn á skráninguna má finna hér: https://forms.office.com/pages/responsepage.aspx...
Nauðsynlegt er að skrá sig til þátttöku, hvort heldur sem er á staðfund eða í streymi. Hlekkinn á skráninguna má finna hér: https://forms.office.com/pages/responsepage.aspx...
Dagskrá málþingsins (birt með fyrirvara um breytingar):
13:00: Ávarp – Magnús Örn Agnesar Sigurðsson, skrifstofustjóri Skrifstofu loftslagsmála hjá umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytinu
13:10: Aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga - nýr leiðarvísir fyrir sveitarfélög – Ragnhildur Friðriksdóttir, sérfræðingur hjá Byggðastofnun og verkefnastjóri C.10
13:25: Loftslagsatlas Íslands – Anna Hulda Ólafsdóttir, skrifstofustjóri Skrifstofu loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofu Ísland
13:40: Trúnó með Gunnari Rúnari Ólafssyni slökkviliðsstjóra slökkviliðs Akureyrar
- Kaffi og kruðerí -
14:05: Aðlögunaráætlun Íslands
14:20: Náttúrumiðaðar lausnir: lykil aðlögunaraðgerð – Bryndís Marteinsdóttir, sviðstjóri rannsókna, vöktunar og árangurs hjá Landi og skógi
14:35: Trúnó með Ólafi Þór Ólafssyni, sveitarstjóra Reykhólahrepps
- Kaffi -
14:55: Leiðbeiningar um aðlögun í skipulagsgerð - Ólafur Árnason, forstjóri Skipulagsstofnunar
15:10: Blágrænn Grundarfjörður - Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála hjá Grundarfjarðarbæ
15:30: Pallborðsumræður