Fara í efni

Fjölbreyttar og öflugar umsóknir í Frumkvæðissjóði Raufarhafnar og Öxarfjarðarhéraðs

Sólstöðuhátíð á Kópaskeri 2025, eitt af fjölmörgum verkefnum sem fengu styrk í fyrstu úthlutun frumk…
Sólstöðuhátíð á Kópaskeri 2025, eitt af fjölmörgum verkefnum sem fengu styrk í fyrstu úthlutun frumkvæðissjóðs BbII

Fjölbreyttar og öflugar umsóknir í Frumkvæðissjóði Raufarhafnar og Öxarfjarðarhéraðs

Umsóknarfrestur í Frumkvæðissjóði tilraunaverkefnisins Brothættar byggðir II (BbII) rann út í dag, mánudaginn 16. febrúar. Verkefnið hefur það að markmiði að styðja við kraftmikla frumkvöðlastarfsemi, samfélagsverkefni, menningu og nýsköpun á svæðinu frá Kelduhverfi til Raufarhafnar. Bbii er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Norðurþings og SSNE.
Fjölmargar metnaðarfullar og fjölbreyttar umsóknir bárust sem endurspeglar mikinn áhuga, frumkvæði og jákvæða framtíðarsýn íbúanna á svæðinu öllu. Niðurstöður úthlutunar verða kynntar í lok mars.
Nánar um hvort verkefni fyrir sig:

Raufarhöfn og framtíðin
Alls bárust 17 umsóknir í Frumkvæðissjóð Raufarhafnar og framtíðarinnar. Samanlögð styrkupphæð sem sótt var um nemur 24.994.117 kr Áætlað er að úthluta 11.500.000 krónum til valinna verkefna.

Öxarfjörður í sókn
Í Frumkvæðissjóð Öxarfjarðar í sókn bárust 14 umsóknir. Heildarfjárhæð umsókna nam 34.235.376 krónum. Áætlað er að úthluta 15.025.000 krónum til valinna verkefna.
Áhugi og frumkvæði íbúa, bæði á Raufarhöfn og í öllu Öxarfjarðarhéraði, er sannarlega til fyrirmyndar og endurspeglast skýrt í fjölbreyttum umsóknum sem bárust í Frumkvæðissjóði BbII. Hugmyndirnar spanna allt frá nýsköpun í þjónustu, ferðaþjónustu og atvinnulífi til menningarverkefna og samfélagseflingar sem miða að aukinni fjölbreytni, bættri þjónustu og sterkari búsetuskilyrðum.

Verkefnisstjórar segja umsóknirnar bera með sér mikinn kraft, samstöðu og trú á framtíð svæðanna, og hvetja umsækjendur til að halda áfram á þeirri braut, sækja einnig í aðra sjóði og nýta tækifærin sem framundan eru. Aukin þátttaka í Frumkvæðissjóðum BbII sýnir ótvíræða grósku í samfélögunum og að íbúar séu staðráðnir í að byggja upp sterkari, fjölbreyttari og sjálfbærari framtíð fyrir Raufarhöfn og Öxarfjarðarhérað.

Getum við bætt síðuna?