Fara í efni

Fréttasafn

Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des

Ályktanir ársþings SSNE 2026

Ársþing Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) var haldið rafrænt á Teams 26. mars 2026. Á þinginu voru samþykktar ályktanir sem endurspegla sameiginlegar áherslur sveitarfélaga á Norðurlandi eystra um áframhaldandi uppbyggingu, jafnræði í opinberri þjónustu og aukna samkeppnishæfni atvinnulífs á Norðurlandi eystra.

Úthlutað var í annað sinn í tilraunaverkefninu Brothættar byggðir II

Úthlutað var í annað sinn í tilraunaverkefninu Brothættar byggðir II 31. mars sl. Verkefnið er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) og Norðurþings. Árið 2025 valdi Byggðastofnun verkefnin Raufarhöfn og framtíðin og Öxarfjörður í sókn til þátttöku í nýju þriggja ára tilraunaverkefni, sem líta má á sem nokkurs konar framhald af verkefninu Brothættar byggðir sem byggðalögin tóku þátt í fyrir nokkrum árum.
Getum við bætt síðuna?