Fara í efni

Ályktanir ársþings SSNE 2026

Ályktanir ársþings SSNE 2026

Ársþing Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) var haldið rafrænt á Teams 26. mars 2026. Á þinginu voru samþykktar ályktanir sem endurspegla sameiginlegar áherslur sveitarfélaga á Norðurlandi eystra um áframhaldandi uppbyggingu, jafnræði í opinberri þjónustu og aukna samkeppnishæfni atvinnulífs á Norðurlandi eystra.

Í ályktununum er lögð áhersla á öfluga innviði og öruggar tengingar innan landshlutans og við aðra hluta landsins, meðal annars með forgangsröðun verkefna í samgöngum og skýrari skrefum til að efla ennfrekar millilandaflug um Akureyrarflugvöll. Jafnframt er kallað eftir hraðari uppbyggingu flutningskerfis raforku til að tryggja afhendingaröryggi og skapa forsendur fyrir nýsköpun og atvinnuuppbyggingu.

Ályktanir ársþingsins taka einnig til lykilþátta í samfélagslegri innviðauppbyggingu, þar á meðal mikilvægi Sjúkrahússins á Akureyri og Háskólans á Akureyri, og leggja áherslu á að stjórnsýsla og stefnumótun taki markvisst mið af byggðasjónarmiðum. Þá er áréttuð þörf á stöðugleika og fyrirsjáanleika í regluverki sem hefur áhrif á atvinnulíf, meðal annars í sjávarútvegi.

Ályktanir ársþings SSNE 2026 má finna hér.

Getum við bætt síðuna?