Fara í efni

Úthlutað var í annað sinn í tilraunaverkefninu Brothættar byggðir II

Úthlutað var í annað sinn í tilraunaverkefninu Brothættar byggðir II

Úthlutað var í annað sinn í tilraunaverkefninu Brothættar byggðir II í vikunni. Verkefnið er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) og Norðurþings.
Árið 2025 valdi Byggðastofnun verkefnin Raufarhöfn og framtíðin og Öxarfjörður í sókn til þátttöku í nýju þriggja ára tilraunaverkefni, sem líta má á sem nokkurs konar framhald af verkefninu Brothættar byggðir sem byggðalögin tóku þátt í fyrir nokkrum árum. Að þessu sinni var auglýst eftir styrkumsóknum í febrúar 2026. Um var að ræða aðra úthlutun í verkefnunum og voru fjármunir til ráðstöfunar 11.500.000 krónur í verkefninu Raufarhöfn og framtíðin II og 15.025.000 krónur í verkefninu Öxarfjörður í sókn II. Frestur til að skila inn umsóknum var til 16. febrúar 2026 og bárust alls 32 umsókn að samanlagðri upphæð 60.229.493 krónur.

Ljóst er að mikill hugur er í fólki og kraftur í samfélögunum, sem endurspeglast bæði í fjölda umsókna sem bárust og gæðum þeirra. Þar eru fjölmörg spennandi verkefni sem öll hafa það að markmiði að styrkja innviði og samfélag á svæðinu. Verkefnin sem hlutu styrki eru að vanda fjölbreytt og áhugaverð og verður spennandi að fylgjast með framgangi þeirra.

Verkefni sem hlutu styrk eru eftirfarandi:

  • Dalsá ehf-Hreinsun á æðardún
  • Félag eldri borgara Raufarhöfn-Gott að eldast í brothættri byggð
  • Fógeti ehf.-Jökulsárleiðin - The Canyon Trail
  • Framfarafélag Öxarfjarðarhrepps-Kópasker - Sagan okkar
  • Gjóla ehf-Bætt aðgengi, sýnileiki og fagleg umgjörð Lýsistankanna á Raufarhöfn
  • Heimskautsgerðið á Raufarhöfn-Heimskautsgerðið skilti og bæklingar
  • Hultin ehf-Industrial unit in Kópasker
  • Markaðssetning Raufarhafnar-Lýðskólinn á Raufarhöfn
  • Maríus S. Halldórsson-Hundahótel , aðstöðugerði
  • Ólafur Gísli Agnarsson -Arctic birdwatching áfangi 2
  • Rannsóknastöðin Rif / Náttúrufræðistofnun Research Mobility Grants for Melrakkaslétta
  • Rhel verk ehf-Rhel verk verkstæði
  • Rótarýklúbbur Húsavíkur (Rótarskot í Norðaustri)-Skúlagata
  • Röndin ehf-CNC laser
  • Saltsalt ehf-Af hverju átt þú að heimsækja Raufarhöfn?
  • Saltsalt ehf-Komdu á Kópasker
  • Sigurlína Jóhannesdóttir-Áningastaður við fuglahræður
  • Sigurlína Jóhannesdóttir-Merktar gönguleiðir í landi Snartarstaða
  • Skjálftafélagið-STÓRI SKJÁLFTINN - 50 ára afmæli!
  • Sveinungi hf-Veðurhlífar - vinnuaðstaða
  • Tinna Stefánsdóttir-Tónlistarbingó á Raufarhöfn
  • Þóra Soffía Gylfadóttir-Hannað við heimskautsbaug
  • UMF Austri-Lýðheilsa á Raufarhöfn
  • Varmaver-Heimasíðugerð og sýnileiki Varmavers

    Nánari upplýsingar um verkefnin sem fengu styrk í verkefninu Raufarhöfn og framtíðin hér: 

    Nánari upplýsingar um verkefnin sem fengu styrk í verkefninu Öxarfjörður í sókn hér: 

Getum við bætt síðuna?