Fara í efni

Niðurstöður Fyrirtækjaþings Akureyrar 2026

Niðurstöður Fyrirtækjaþings Akureyrar 2026

Fyrirtækjaþing Akureyrar fór fram í Hofi í mars og var þriðja þingið af þessu tagi. Þingið var skipulagt í samstarfi Akureyrarbæjar og Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE). Markmiðið er efla samtal fyrirtækja og stofnana á svæðinu, skapa vettvang þar sem fulltrúar þeirra geta hist og afla mikilvægra viðhorfa og tillagna sem nýtast við áframhaldandi samstarf um þróun atvinnulífs á Akureyri.

Að þessu sinni voru þátttakendur spurðir út í borgarstefnu fyrir Akureyri og tóku svo þátt í léttum leik þar sem hvert borð breyttist í framboðslista sem lögðu á ráðin og mótuðu stefnumál fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Margar góðar hugmyndir komu fram og umræður einkenndust af opnu og jákvæðu samtali um málefni atvinnulífsins og framtíðarsýn fyrirtækja á Akureyri.

Niðurstöður þingins byggja ekki á kosningu eða forgangsröðun hugmynda heldur er um að ræða samantekt á þeim viðhorfum sem fram komu í hópavinnunni. Þau voru í mjög stuttu máli þessi og féllu í eftirfarandi flokka:

  • Samgöngur og innviðir: Betri innanbæjarsamgöngur, efling strætókerfis, stuðningur við umhverfisvænar samgöngur og bættir flutningar á sjó, landi og lofti.
  • Flugvöllur og millilandaflug: Heilsárs millilandaflug, áfram haldandi uppbygging nýrrar flugstöðvar, öruggar eldsneytisbirgðir og skýr hagsmunagæsla.
  • Atvinnulíf, menntun og mannauður: Efling iðn- og verkmenntunar, betra samspil menntakerfis og atvinnulífs, aukin tæknimenntun og tengsl við Háskólann á Akureyri.
  • Miðbær og borgarumhverfi: Lifandi miðbær, skrifstofur og atvinnustarfsemi nálægt miðbæ, lokuð göngugata og aðlaðandi borgarhönnun.
  • Skattar og rekstrarumhverfi fyrirtækja: Lækkun fasteignagjalda og lóðagjalda, skýr og fyrirsjáanleg gjaldtaka.
  • Menning, íþróttir og afþreying: Styrkja sérkenni Akureyrar, auka sýnileika list- og tónlistarmenntunar, bæta aðgengi að íþróttamannvirkjum.
  • Markaðssetning og ímynd: Samræmd og metnaðarfull markaðssetning á innlendum og alþjóðlegum vettvangi.
  • Velferð, skólar og samfélagsinnviðir: Öflugt skólakerfi, heilbrigðisþjónusta og félagslegir innviðir fyrir alla.
  • Sjálfbærni og nýjar lausnir: Endurnýting úrgangs og rafrænar lausnir.
  • Nýbúar, nýsköpun og framtíðarstefna: Nýbúastefna 2026–2032 „Meira talent – meira fjör“, traustir innviðir, þróun nýsköpunarstefnu til 2035 og aukið samstarf fyrirtækja og stjórnvalda.

Niðurstöðurnar draga upp framtíðarsýn þar sem Akureyri er skilgreind sem samkeppnishæf, sjálfbær og aðlaðandi borg með öfluga innviði, fjölbreytt atvinnulíf og há lífsgæði – fyrir íbúa, fyrirtæki og gesti.

Getum við bætt síðuna?