Pistill framkvæmdastjóra
Pistill framkvæmdastjóra
Marsmánuður var óvenju viðburðaríkur hjá SSNE. Undirbúningur og framkvæmd Ársþings SSNE 2026 setti eðlilega nokkuð mark sitt á mánuðinn, enda var þingið haldið 26. mars og fór að lokum fram á Teams vegna óhagstæðs veðurs. Þrátt fyrir breytt fyrirkomulag var þingið mjög vel sótt og töluverðar umræður um málefni þingsins.
Eitt af stærstu málum þingsins var samþykkt loftslagsstefnu Norðurlands eystra, sem byggir á víðtæku samráði og faglegri vinnu RECET-verkefnisins. Þetta er mikilvægur áfangi fyrir okkur öll – skýr og metnaðarfull stefna sem mun leiða okkur áfram í sameiginlegri loftslags- og innviðauppbyggingu.
Á þinginu voru einnig samþykktar ályktanir þingsins þar sem áhersla var lögð á lykilinnviði svæðisins og öruggar tengingar innan landshlutans og við aðra hluta landsins. Þá tóku þær einnig til lykilþátta í samfélagslegri innviðauppbyggingu landshlutans. Þessar áherslur þingsins verða áfram meðal forgangsatriða í hagsmunagæslu SSNE á árinu.
Þess fyrir utan unnum við að fjölbreyttum verkefnum í mánuðinum. Þannig komu fram niðurstöður úr nýjustu greiningu Púlsins – Norðurland eystra í tölum, þar sem að þessu sinni var fjallað um iðnað og atvinnulíf á svæðinu. Ég hvet ykkur til að kynna ykkur greininguna hér. Þá birtist í mánuðinum ákaflega áhugaverð skýrsla um vinnu- og þjónustusókn íbúa landsins sem áhugasöm geta kynnt sér á heimasíðu Byggðastofnunar.
Þá var nýsköpun einnig áberandi í mánuðinum, meðal annars með „Stormi hugmynda“ á Krubbnum á Húsavík og með vali þátttakendum í norrænu nýsköpunarkeppnina TONIK 2026 sem fram fer í Færeyjum í maí. Þá var í lok mánaðarins úthlutað í annað sinn í tilraunaverkefninu Brothættar byggðir II þar sem 24 verkefni hlutu styrk. Öll þessi verkefni eru mikilvæg stoð í því að styrkja sprota, nýjar hugmyndir og fjölbreytt atvinnulíf í landshlutanum.
Það er annars vor í lofti og fjölmargt framundan í apríl mánuði. Þar vil ég sérstaklega vekja athygli á því að þessa dagana er verið að vinna að endurskoðun byggðaáætlunar hjá innviðaráðuneyti og Byggðastofnun og hefur SSNE boðaði til fundar í samstarfi við innviðaráðuneyti og Byggðastofnun þar sem fyrstu drög að endurskoðaðri byggðaáætlun verða kynnt, með sérstaka áherslu á drög að aðgerðaráætlun hennar. Fundurinn fer fram á Teams föstudaginn 10. apríl næstkomandi kl. 11. Þetta er mikilvægt ferli sem mótar framtíðarsýn og forgangsröðun í byggðamálum landsins til næstu ára. Ég vil því að nýta hér tækifærið og hvetja áhugasöm til að mæta til fundarins og taka þátt í samtalinu, en skráning á fundinn fer fram hér.