Fara í efni

Púlsinn – Norðurland eystra í tölum: Iðnaður og atvinnulíf

Púlsinn – Norðurland eystra í tölum: Iðnaður og atvinnulíf

Annað tölublað Púlsins – Norðurland í tölum er nú komið út og fjallar að þessu sinni um iðnað og annað atvinnulíf á Norðurlandi eystra. Í Púlsinum eru birtar greiningar sem varpa ljósi á stöðu og þróun mála í landshlutanum.

Í þessu tölublaði er sérstaklega horft til þróunar iðnaðarstarfa og fjölbreytni atvinnulífs í sveitarfélögum á Norðurlandi eystra. Greiningin byggir á samanburði tveggja þriggja ára tímabila, annars vegar 2013–2015 og hins vegar 2023–2025, þar sem skoðað er hvernig fjöldi launþega og launagreiðenda í iðnaði hefur þróast, sem og hversu fábreytt eða fjölbreytt atvinnulíf sveitarfélaganna er.

Niðurstöðurnar sýna að launþegum í iðnaði fjölgaði í nær öllum sveitarfélögum á Norðurlandi eystra, en aðeins eitt sveitarfélag sker sig úr þar sem fækkun varð. Hlutfallslega var fjölgunin mest í Hörgársveit og einnig var veruleg fjölgun bæði launþega og launagreiðenda í iðnaði í fleiri sveitarfélögum, þar á meðal á Akureyri, Dalvíkurbyggð og í Þingeyjarsveit. 

Einnig var fjölbreytni atvinnulífsins skoðuð og borin saman við önnur sveitarfélög á landinu. Þar kemur fram að Norðurþing, Fjallabyggð og Akureyrarbær búa við eina mestu fjölbreytni atvinnulífs meðal íslenskra sveitarfélaga. Í flestum sveitarfélögum á Norðurlandi eystra jókst fjölbreytni atvinnulífs milli tímabila, þó að nokkur sveitarfélög hafi gefið lítillega eftir. Púlsinn er ætlaður sem hagnýtt greiningartæki fyrir sveitarfélög, hagaðila og aðra sem hafa áhuga á þróun byggða og atvinnulífs á Norðurlandi eystra.

Hér má nálgast 2. tölublað Púlsins – Iðnaður og annað atvinnulíf á Norðurlandi eystra.

Getum við bætt síðuna?