Fara í efni

Nýr aðgerðabanki loftslagsmála fyrir íslensk sveitarfélög

Bankinn er safn 49 aðgerða sem nýtast sem grunnur að heildstæðum loftslagsáætlunum.
Bankinn er safn 49 aðgerða sem nýtast sem grunnur að heildstæðum loftslagsáætlunum.

Nýr aðgerðabanki loftslagsmála fyrir íslensk sveitarfélög

Hagnýtt verkfæri fyrir mótun aðgerðaáætlana í loftslagsmálum

Aðgerðabanki RECET er hagnýtt og aðgengilegt verkfæri sem sniðið er að þörfum sveitarfélaga á Íslandi við mótun aðgerðaáætlana í orkuskiptum og loftslagsmálum.

Bankinn er safn 49 aðgerða sem nýtast sem grunnur að heildstæðum loftslagsáætlunum og ná yfir orkuskipti, orkunýtni, breyttar ferðavenjur, fræðslu og aukna sjálfbærni í rekstri sveitarfélaga.

Unnið í samstarfi við sveitarfélög

Aðgerðabankinn var unninn af Eimur, SSNE og Vestfjarðastofa í kjölfar vinnustofa með fulltrúum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og Vestfjörðum árin 2024–2025.

Aðgerðirnar byggja því beint á þörfum, reynslu og áherslum starfsfólks og stjórnenda sveitarfélaga á landsbyggðinni.

Verkefnið er hluti af RECET (Rural Europe for the Clean Energy Transition), sem styður orkuskipti í dreifðum byggðum og er styrkt af LIFE styrktaráætlun Evrópusambandsins.

Skýr uppbygging og tenging við landsmarkmið

Í bankanum er hver aðgerð sett fram með:

  • skýru markmiði
  • hugmyndum að framkvæmd
  • tillögu að ábyrgðaraðila
  • flokkun innan stjórnsýslu sveitarfélags

Einnig er leitast við að tengja aðgerðir við aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum á Stjórnarráð Íslands (co2.is), til að stuðla að betri samfellu milli markmiða ríkis og sveitarfélaga.

Aðgerðabankinn er ekki tæmandi en spannar breitt svið. Aðgerðir eru mis umfangsmiklar; sumar má innleiða með einföldum hætti innan stjórnsýslunnar en aðrar krefjast víðtækara samstarfs og fjárfestinga.

Aðgengi og notkun

Aðgerðabankann er hægt að skoða hér beint á vefnum og hlaða niður á Excel-formi, á íslensku og ensku. Þannig geta sveitarfélög aðlagað efnið að eigin stefnumótun og innleiðingu.

 

Aðgerðabankinn er öllum opinn og frjáls til afnota.

Ef þið nýtið bankann í eigin vinnu viljum við gjarnan heyra af því, og endilega hafið samband við sigurborg@ssne.is 

Getum við bætt síðuna?