Fara í efni

Fréttasafn

Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des
Frá undirrituninni á Dalvík í dag. Mynd: Örlygur

Aukin þjónusta Bergsins fyrir ungmenni á Norðurlandi eystra

Sveitarstjórar allra tíu sveitarfélaganna innan SSNE undirrituðu í dag samstarfssamning við Bergið Headspace um aukna stuðnings- og ráðgjafarþjónustu fyrir ungmenni á Norðurlandi eystra. Undirritunin fór fram á Haustþingi SSNE á Dalvík. Markmið samstarfsins er að tryggja ungu fólki greiðari aðgang að gjaldfrjálsri ráðgjöf og stuðningi og stuðla að snemmtækri íhlutun. Bergið veitir ungmennum á aldrinum 12 til 25 ára einstaklingsmiðaða ráðgjöf, án skilyrða og endurgjalds.
Húsfyllir var á farsældadegi í Hofi á föstudag og líflegar umræður. Mynd: Örlygur

Vel heppnaður Farsældardagur Norðurlands eystra

„Markmiðið er að brjóta niður múra milli kerfa og horfa heildrænt á málefni barna. Barnið á ekki að þurfa að passa inn í skipulag kerfanna heldur þurfa kerfin að vinna saman út frá þörfum barnsins,“ sagði Þorleifur Kr. Níelsson, verkefnastjóri Farsældarráðs Norðurlands eystra í lok vel heppnaðs Farsældardags.
Frá setningu Farsældardags Farsældarráðs Norðurlands eystra.

Pistill framkvæmdastjóra

Sumarið er að baki og starfsemi SSNE komin á fullt skrið á ný eftir sumarleyfi.

47 UMSÓKNIR BÁRUST Í STARTUP LANDIÐ

Alls bárust 47 spennandi umsóknir í viðskiptahraðalinn Startup Landið, en stærsti hluti umsækjenda kemur af Suðurlandi. Hraðallinn hefst formlega þann 24. september næstkomandi og er vettvangur fyrir nýsköpunarverkefni og frumkvöðla á landsbyggðinni. Fjöldi heildarumsókna endurspeglar vel þá eftirspurn eftir stuðningi og faglegum vettvangi fyrir frumkvöðla um land allt.

SSNE tók þátt í vinnustofu NACEMAP í Limerick

Fulltrúar NACEMAP-verkefnisins komu saman við Háskólann í Limerick á Írlandi fimmtudaginn 27. ágúst til vinnustofu um viðbragðsáætlanir, samstarf aðila og eflingu viðnámsþróttar samfélaga gagnvart náttúruvá og öðrum neyðartilvikum.
Getum við bætt síðuna?