Vel heppnaður Farsældardagur Norðurlands eystra
Vel heppnaður Farsældardagur Norðurlands eystra
Farsældardagur Norðurlands eystra fór fram í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri föstudaginn 4. september. Fjölbreyttur hópur fagfólks, fulltrúa stofnana, sveitarfélaga og foreldra kom þar saman til að ræða farsæld barna, samþættingu þjónustu og hvernig styrkja megi samstarf þeirra fjölmörgu aðila sem koma að málefnum barna og fjölskyldna á starfssvæði SSNE.
Karólína Gunnarsdóttir, formaður Farsældarráðs Norðurlands eystra, setti daginn en að því loknu tók við fjölbreytt dagskrá. Fjallað var um hlutverk nærumhverfis barna, reynslu minni sveitarfélaga af innleiðingu farsældar, þjónustu við ungmenni, samfélagsmiðaða löggæslu og starf heilbrigðisstofnana. Þá var einnig sagt frá reynslu foreldra af samþættingu þjónustu og sjónarhorn tengiliða og málstjóra dregið fram.
Sigríður Ingibjörg Stefánsdóttir, iðjuþjálfi og tengiliður Valsárskóla, fjallaði um reynslu Svalbarðsstrandarhrepps af innleiðingu farsældar. Hún lagði áherslu á mikilvægi þess að stuðningur hefjist snemma og að farsæld verði sýnileg í daglegu umhverfi barna og foreldra.
„Farsæld verður ekki til við það eitt að samþykkja ný lög. Hún verður til í daglegu starfi, í samtali við börn og foreldra og í trausti milli þeirra sem vinna með þeim. Mikilvægast er að stuðningur hefjist snemma,“ sagði Sigríður í erindi sínu. Hún benti jafnframt á að langir biðlistar eftir sérfræðiþjónustu og skortur á úrræðum geti reynst bæði börnum, fjölskyldum og starfsfólki krefjandi.
Arna Ásgeirsdóttir, tengiliður við Borgarhólsskóla, og Sonja Finnsdóttir, iðjuþjálfi og tengiliður farsældar á leikskólanum Grænuvöllum á Húsavík, fjölluðu um farsæld barna frá sjónarhóli tengiliða í Norðurþingi. Sonja lýsti reynslu sinni af fyrsta árinu í starfi tengiliðar og lagði sérstaka áherslu á snemmtæka íhlutun. Á Grænuvöllum sé markmiðið að bregðast við eins fljótt og hægt er í stað þess að bíða eftir að vandi verði umfangsmeiri eða formleg greining liggi fyrir.
„Það skiptir foreldra miklu máli að upplifa að á þau sé hlustað. Ég hef upplifað mikið þakklæti frá foreldrum sem leita til mín og í mörgum tilfellum eru þau hreinlega gáttuð á því hvað þau fá fljótt mikla aðstoð,“ sagði Sonja í máli sínu. Hún sagði jafnframt að enn væru hindranir í vegi fyrir þeirri samþættingu sem farsældarlöggjöfin stefni að. Sérstaklega skorti einfaldan og öruggan vettvang fyrir samskipti skóla- og heilbrigðisstofnana um viðkvæm mál og svigrúm heilbrigðisstarfsfólks til þátttöku í teymisvinnu væri takmarkað. „Ég upplifi enn mikla gjá á milli heilbrigðisstofnana og skólastofnana. Það er erfitt að ná þeirri dýpt í farsældarteymunum sem við viljum þegar stóra leikmenn vantar á teymisfundina,“ sagði Sonja.
Halldór Tumi Ólason, saksóknarfulltrúi hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra, fjallaði um tengsl samfélagslöggæslu og farsældar barna. Hann lagði m.a. áherslu á mikilvægi þess að lögreglan eigi bein og jákvæð samskipti við íbúa utan hefðbundinna útkalla. „Við viljum færa lögregluna nær samfélaginu og byggja upp traust með sýnilegri nærveru og beinum samskiptum við íbúa, ekki aðeins þegar eitthvað hefur farið úrskeiðis. Sérstaklega skiptir máli að ná betur til yngri kynslóðarinnar og skapa tengsl áður en vandamál verða að útköllum,“ sagði Halldór Tumi.
Meðal annarra sem fluttu erindi voru Páll Ólafsson, framkvæmdastjóri farsældar- og barnaverndarsviðs Barna- og fjölskyldustofu, Baldur Ingason frá Ungmennahúsi Akureyrarbæjar, fulltrúar Sjúkrahússins á Akureyri og Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, fulltrúar Brúarinnar fjölskylduseturs og lokaerindi dagsins flutti Anna Dögg Sigurjónsdóttir, málstjóri frá Akureyrarbæ, sem endaði dagskránna með kraftmikilli ræðu.
Deginum lauk með pallborðsumræðum undir yfirskriftinni Tækifærin í samþættingu þjónustu – Funkerar farsæld barna? þar sem fulltrúar foreldra, sveitarfélaga, Barna- og fjölskyldustofu og íþróttahreyfingarinnar ræddu tækifæri og áskoranir við innleiðingu farsældar.
Þorleifur Kr. Níelsson, verkefnastjóri Farsældarráðs Norðurlands eystra, segir daginn hafa gefið mikilvæga innsýn inn í áframhaldandi starf ráðsins.
„Það er mikil tilhlökkun hjá okkur að kynna það starf sem hefur verið unnið og Farsældardagurinn gaf okkur jafnframt verðmætt veganesti inn í áframhald þessarar vinnu. Markmiðið er að brjóta niður múra milli kerfa og horfa heildrænt á málefni barna. Barnið á ekki að þurfa að passa inn í skipulag kerfanna heldur þurfa kerfin að vinna saman út frá þörfum barnsins,“ segir Þorleifur.
Heimir Örn Árnason, formaður stjórnar SSNE, sleit ráðstefnunni síðdegis.