Fara í efni

Pistill framkvæmdastjóra

Frá setningu Farsældardags Farsældarráðs Norðurlands eystra.
Frá setningu Farsældardags Farsældarráðs Norðurlands eystra.

Pistill framkvæmdastjóra

Sumarið er að baki og starfsemi SSNE komin á fullt skrið á ný eftir sumarleyfi. Þótt júlímánuður beri jafnan keim af rólegri takti gaf hann engu að síður tilefni til að horfa bæði um öxl og fram á veginn. Á meðal verkefna sem SSNE vakti athygli á í júlí var útgáfa lokaskýrslu um menningarhús á landsbyggðinni, sem varpar ljósi á mikilvæga innviði menningarstarfs víða um land. Þá ítrekaði stjórn SSNE mikilvægi áframhaldandi uppbyggingar millilandaflugs um Akureyrarflugvöll og tryggingar fjármögnunar Flugþróunarsjóðs, hvoru tveggja mál sem hafa mikla þýðingu fyrir búsetuskilyrði, uppbyggingu atvinnulífs og samkeppnishæfni Norðurlands eystra.

Með ágústmánuði tók starfsemin aftur við sér af fullum krafti. Nýsköpun og atvinnuþróun voru áberandi í ágúst. Opið var fyrir umsóknir í Startup Landið, nýsköpunarhraðal fyrir frumkvöðla á landsbyggðinni, og ánægjulegt er að sjá þann mikla áhuga sem verkefnið hefur vakið en alls bárust 47 umsóknir víðsvegar af landinu og þar af voru 6 umsóknir frá Norðurlandi eystra. Þess má geta í þessu samhengi að þetta er í sjötta árið í röð sem SSNE og SSNV koma að því að keyra hraðal fyrir nýsköpunarverkefni. Þá tekur SSNE þátt í nýju samstarfsverkefni með Drift EA, Ignite Nordic, sem ætlað er að efla tengsl frumkvöðla, fyrirtækja og opinberra aðila og skapa ný tækifæri til verðmætasköpunar á svæðinu. Þetta eru verkefni sem styðja vel við það markmið okkar að efla nýsköpunarumhverfi Norðurlands eystra og skapa góðan jarðveg fyrir framtíðaratvinnugreinar.

Á sama tíma höfum við áfram lagt áherslu á að fylgjast með þróun mála í landshlutanum. Þar má nefna nýjan Púls Norðurlands eystra í ágúst sem fjallar um þjónustu- og atvinnusókn íbúa svæðisins og veitir mikilvæga innsýn í þróun byggðar og þjónustu. Þá hefur stjórn SSNE einnig látið til sín taka í opinberri umræðu, meðal annars með fjölda umsagna um mál í Samráðsgátt stjórnvalda og bókunum á stjórnarfundum.

Septembermánuður fer svo vel af stað hjá SSNE. Í dag fór fram Farsældardagur Norðurlands eystra í Hofi á Akureyri þar sem fjölbreyttur hópur fagfólks, stjórnenda, kjörinna fulltrúa og annarra sem koma að málefnum barna og fjölskyldna kom saman til að ræða farsæld barna og samþættingu þjónustu. Dagskráin tókst afar vel og staðfesti enn á ný mikilvægi þess að skapa vettvang fyrir samtal, miðlun reynslu og samstarf þvert á kerfi og stofnanir.

Næst á dagskrá er svo haustþing SSNE sem fram fer í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík þann 9. september næstkomandi. Haustþingið er mikilvægur vettvangur fyrir sveitarstjórnarfólk, starfsfólk sveitarfélaga og aðra samstarfsaðila til að ræða sameiginleg viðfangsefni landshlutans. Að þessu sinni verður þingið jafnframt það fyrsta á nýju kjörtímabili og því kjörið tækifæri til að hefja samtal um þær áherslur og áskoranir sem bíða okkar á komandi árum.

Farsældardagur Norðurlands eystra fer fram í Hofi þar sem sjónum verður beint að farsæld barna og samþættingu þjónustu. Á sama tíma standa yfir fjölbreytt verkefni sem tengjast menningu, meðal annars samtalsviðburðir undir yfirskriftinni „Spjöllum um menningu!“ sem SSNE stendur að í samstarfi við sveitarfélög á svæðinu.

Þá verður áframhaldandi áhersla á nýsköpun á komandi vikum. Startup Landið hefst síðar í mánuðinum og HönnunarÞing verður haldið á Húsavík dagana 25. og 26. september þar sem fjallað verður um orku, samfélagsþróun og framtíðarsýn. Þá er ástæða til að vekja sérstaka athygli á því að Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra opnar fyrir umsóknir um miðjan mánuð og hvet ég áhugasama einstaklinga, fyrirtæki og félagasamtök til að kynna sér þau tækifæri sem þar felast, en opnað verður fyrir umsóknir 16. september og lýkur umsóknarfresti 21. október kl. 14:00.

Það er því óhætt að segja að haustið fari vel af stað. Okkur hjá SSNE hlakkar til áframhaldandi samstarfs við sveitarfélög, fyrirtæki, stofnanir og íbúa landshlutans á komandi mánuðum og hvetjum ykkur til að hafa samband ef einhverjar hugmyndir kvikna!

Með kærri kveðju,
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir
Framkvæmdastjóri SSNE

Getum við bætt síðuna?