Spjöllum um menningu!
Spjöllum um menningu!
SSNE er í samstarfi við sveitarfélögin að halda tvo viðburði í september þar sem rætt verður um menningu.
Annarsvegar halda SSNE og Þingeyjarsveit menningarspjalli á Sel Hótel Mývatni 8. september kl. 17:00. Hinsvegar halda SSNE og Norðurþing menningarspjall á Gamla Bauk 10. september kl. 12:00.
Á fundinum verður meðal annars fjallað um Uppbyggingarsjóð og hvernig hann getur stutt við menningarstarf og þróun verkefna í héraðinu. Einnig verður kynnt annað spennandi starf og verkefni sem eru í undirbúningi á svæðinu.
Allir sem hafa áhuga á menningarstarfi og þróun þess á Norðurlandi eystra eru hvattir til að mæta og taka þátt í samtalinu.
Fulltrúar SSNE verða á staðnum eftir fundina til að ræða við áhugasama um einstök verkefni.