Fundargerð 85. fundar stjórnar SSNE - 11. ágúst 2026
11.08.2026
Fundur haldinn þriðjudaginn 11. ágúst 2026 í Valsársskóla, Svalbarðsstrandarhreppi. Hófst fundurinn kl. 11.00.
Fundinn sátu: Heimir Örn Árnason, formaður, Helena Eydís Ingólfsdóttir, Sunna María Jónasdóttir, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, Monika M. Stefánsdóttir, Linda Lárusdóttir í forföllum Hermanns Inga Gunnarssonar, Knútur Emil Jónasson, Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir, Ólafur Rúnar Ólafsson og Gísli Gunnar Oddgeirsson, Jóhann K. Jóhannsson (á Teams), og Albertína Friðbjörg Elíasdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð.
- Haustþing SSNE 2026
Lögð fram drög að dagskrá haustþings SSNE sem boðað hefur verið 9. september næstkomandi verður haldið í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík. Þá er einnig lögð fram tillaga að uppfærðri fjárhagsáætlun sem felur í sér lækkun launaliðar vegna breytinga á fjölda starfsfólks. Rögnvaldur Guðmundsson verkefnastjóri fjármála mætti til fundarins undir þessum lið til að fylgja eftir tillögu að endurskoðaðri fjárhagsáætlun.
Stjórn samþykkir fyrirliggjandi drög að dagskrá og tillögu að endurskoðaðri fjárhagsáætlun. Stjórn felur framkvæmdastjóra að senda uppfærða dagskrá og gögn þingsins til þingfulltrúa og annarra gesta í samræmi við samþykktir SSNE. - Fimm mánaða uppgjör (óendurskoðað)
Lagt fram til kynningar fimm mánaða uppgjör (óendurskoðað). Uppgjörið sýnir að rekstur á fyrri hluta ársins hefur verið í samræmi við fjárhagsáætlun.
Rögnvaldur Guðmundsson verkefnastjóri fjármála sat fundinn undir þessum lið og kynnti uppgjörið.
Stjórn þakkar fyrir kynninguna. - Starfsmannamál – viðbragðsáætlun og tilkynningaskjal
Framkvæmdastjóri kynnti uppfærð EKKÓ skjöl fyrir SSNE. Um er að ræða viðbragðsáætlun vegna eineltis, áreitni og/eða ofbeldi á vinnustað og tilkynningareyðublað vegna sömu atriða.
Stjórn þakkar fyrir kynninguna.
Jóhann K. Jóhannsson vék af fundi kl. 12:00 og mætti aftur kl. 13:00. Hádegisverðarhlé var gert á fundi kl. 12:30 til kl. 13:00. - Loftslagsstefna Norðurlands eystra, aðgerðaáætlun og eftirfylgni
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, verkefnisstjóri umhverfismála hjá SSNE mætti til fundarins undir þessum lið og kynntiloftslagsstefnu Norðurlands eystra og eftirfylgni hennar.
Stjórn SSNE þakkar Sigurborgu fyrir kynninguna. - Fjölmenningarráð SSNE
Lögð fram drög að erindi til sveitarfélaga innan SSNE um endurskipan Fjölmenningarráðs SSNE í kjölfar sveitarstjórnarkosninga.
Stjórn felur framkvæmdastjóra að senda erindið til sveitarfélagana. - Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra
Lögð fram til kynningar fundargerð 250. fundar Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra. Framkvæmdastjóri fór jafnframt yfir stöðu mála vegna fyrirhugaðrar niðurlagningar á Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra.
Stjórn þakkar kynninguna. Stjórn SSNE tekur undir bókanir Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra vegna fyrirhugaðs flutnings verkefna heilbrigðiseftirlits til ríkisins frá og með 1. janúar 2027.
Stjórnin leggur jafnframt áherslu á mikilvægi þess að starfsemi Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra verði óskert til loka árs 2026, að hagsmunir starfsfólks verði tryggðir og að skýrt liggi fyrir hvaða verkefni verða áfram á ábyrgð sveitarfélaga áður en breytingarnar taka gildi.
Stjórn SSNE telur mikilvægt sveitarfélög á starfssvæðinu hefji undirbúning að þeim verkefnum sem áfram verða á þeirra ábyrgð, meðal annars með kortlagningu samþykkta, stjórnsýsluverkefna og þeirrar sérþekkingar sem byggst hefur upp innan HNE. Þótt lögbundið eftirlit flytjist til ríkisins munu sveitarfélög áfram bera ríkar skyldur og ábyrgð á sviðum sem tengjast skipulagsmálum, umhverfisvernd, vatnsvernd, fráveitumálum, úrgangsmálum, mengunarvörnum, dýrahaldi og öðrum verkefnum þar sem þekking og reynsla starfsfólks HNE hafa verið mikilvægur þáttur í ákvarðanatöku og þjónustu við sveitarfélögin. Jafnframt er mikilvægt að meta hvort ávinningur geti falist í áframhaldandi eða nýju samstarfi sveitarfélaga um ráðgjöf, sérfræðiþjónustu eða önnur verkefni sem falla utan verkefnasviðs ríkisins.
SSNE er vettvangur samráðs sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og því góður vettvangur til umræðu um mögulegar sameiginlegar lausnir og samstarf sem stuðlað geti að því að varðveita þekkingu, samræmingu og faglega þjónustu á svæðinu eftir 1. janúar 2027 og hefur að því marki breytt dagskrá haustþings SSNE 2026 sem haldið verður á Dalvík þann 9. september til að hefja umræðu um framtíðar skipan þeirra verkefna sem áfram verða á ábyrgð sveitarfélaga. - Mál til kynningar
- Mál til umsagnar
- Hvítbók um Byggðamál (Samráðsgátt).
Stjórn samþykkir umsögnina og felur framkvæmdastjóra að senda hana inn á Samráðsgátt fyrir hönd stjórnar SSNE. - Efnistök grænbókar um fjarskipti og netöryggi (Samráðsgátt).
Stjórn samþykkir umsögnina með þeim breytingar sem gerðar voru á fundinum og felur framkvæmdastjóra að senda hana inn á Samráðsgátt fyrir hönd stjórnar SSNE. - Drög að reglugerð um fjarheilbrigðisþjónustu (Samráðsgátt).
Stjórn mun ekki senda inn umsögn á þessu stigi málsins. - Reglugerð um Loftslags- og orkusjóð (Samráðsgátt).
Stjórn mun ekki senda inn umsögn á þessu stigi málsins. - Áform um skipulagsbreytingar lögreglunnar (Samráðsgátt).
Stjórn samþykkir umsögnina og felur framkvæmdastjóra að senda hana inn á Samráðsgátt fyrir hönd stjórnar SSNE. - Áform um lagasetningu – breyting á búvörulögum og búnaðarlögum um framlengingu búvörusamninga (Samráðsgátt).
Stjórn mun ekki senda inn umsögn á þessu stigi málsins. - Frumvarp til laga um fjárfestingar ríkisins (Samráðsgátt).
Stjórn mun ekki senda inn umsögn á þessu stigi málsins. - Drög að þingsályktun um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku (Samráðsgátt).
Stjórn samþykkir umsögnina og felur framkvæmdastjóra að senda hana inn á Samráðsgátt fyrir hönd stjórnar SSNE.
- Hvítbók um Byggðamál (Samráðsgátt).
- Önnur mál
-
- Fundartími stjórnar
Rætt um fundartíma stjórnar í vetur en á síðasta fundi var samþykkt að fundir stjórnar yrðu annan hvern þriðjudag hvers mánaðar.
Stjórn samþykkir að færa fyrirhugaðan stjórnarfund í september til 15. september 2026. - Tillögur að ályktunum haustþings SSNE 2026
Framkvæmdastjóri kynnti drög að ályktunum haustþings SSNE 2026.
Stjórn þakkar fyrir drögin og mun fjalla áfram um þau í tölvupósti. Tillögurnar verða sendar út með gögnum þingsins í samræmi við samþykktir SSNE.
- Fundartími stjórnar
-
Fundi slitið kl. 14:19.