Stór hagsmunamál til umræðu á Haustþingi SSNE
Stór hagsmunamál til umræðu á Haustþingi SSNE
Haustþing Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, SSNE, fór fram í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík í dag. Fjölmörg stór hagsmunamál landshlutans voru á dagskrá, meðal annars samgöngur og öryggisinnviðir, orkumál, fjarskipti, ferðaþjónusta, menntun og heilbrigðisþjónusta.
Við upphaf þingsins undirrituðu sveitarstjórar og fulltrúar allra tíu sveitarfélaganna innan SSNE samstarfssamning við Bergið Headspace um aukna stuðnings- og ráðgjafarþjónustu fyrir ungmenni á Norðurlandi eystra.
Markmið samstarfsins er að tryggja ungu fólki greiðari aðgang að gjaldfrjálsri ráðgjöf og stuðningi og stuðla að snemmtækri íhlutun. Bergið Headspace veitir ungmennum á aldrinum 12 til 25 ára einstaklingsmiðaða ráðgjöf án skilyrða og endurgjalds.
Heimir Örn Árnason, formaður SSNE, setti þingið og sagði í opnunarávarpi sínu miklu skipta fyrir sveitarfélögin að eiga sameiginlegan farveg þar sem ólíkar raddir heyrast.
„Norðurland eystra hefur sterkar byggðir, öflugt atvinnulíf, fjölbreytta náttúru og mikilvæga innviði og við verðum að standa saman um lykilmál sem snúa að grunnstoðum samfélaganna, slík mál varða ekki eitt heldur öll sveitarfélögin,“ sagði Heimir.
Fjölmargar ályktanir voru lagðar fyrir þingið, meðal annars um áframhaldandi uppbyggingu Akureyrarflugvallar sem mikilvægs samgöngu- og öryggisinnviðar og stuðning við aukna starfsemi Landhelgisgæslunnar á Akureyri, þar á meðal með staðsetningu á einni af þremur þyrlum Landhelgisgæslunnar á Akureyrarflugvelli.
Orkuöryggi og fjarskipti voru einnig meðal áherslumála. Rætt var á mikilvægi þess að uppbygging raforkukerfisins haldi ekki aftur af atvinnuuppbyggingu og orkuskiptum í landshlutanum. Jafnframt lýsti þingið áhyggjum af versnandi farsímasambandi á ákveðnum svæðum í kjölfar lokunar 2G- og 3G-kerfanna og kallað eftir skýrri áætlun um úrbætur á fjarskiptasambandi á landsbyggðinni.
Ferðaþjónusta var fyrirferðarmikið mál í umræðum þingsins. Þar var meðal annars fjallað um mikilvægi áframhaldandi uppbyggingar millilandaflugs um Akureyri, stuðning við Flugþróunarsjóð og nauðsyn þess að stjórnvöld taki mið af ólíkri stöðu ferðaþjónustu milli landshluta þegar ákvarðanir eru teknar um skatta og gjaldtöku.
Sérstök viðbótartillaga kom fram á þinginu vegna fyrirhugaðrar hækkunar virðisaukaskatts á baðlón.
Helena Eydís Ingólfsdóttir, varaformaður SSNE sagði áhugavert að horfa til þess fjölda baðstaða sem eru á starfssvæði SSNE og þær ólíku sviðsmyndir sem hér eru til staðar. „Sjóböðin í reglubundnum rekstri, Jarðböðin hafa nýverið verið opnuð á ný eftir umfangsmiklar breytingar og stækkun og Skógarböðin eru í uppbyggingarferli. Þá eru einnig áform um uppbyggingu baða á fleiri stöðum á svæðinu. Skattahækkunin sem nú er boðuð með þetta skömmum fyrirvara getur haft ólík áhrif á fyrirtækin í þeim aðstæðum sem uppi eru á hverjum stað, bein áhrif á rekstur eða fjárfestingar,“ sagði Helena í umræðu um ályktunina.
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, ávarpaði þingið og talaði um mikilvægi þess að styrkja nýsköpun og nýsköpunarumhverfi utan höfuðborgarsvæðisins.
„Við verðum að færa stuðningskerfið nær fólkinu um allt land,“ sagði Logi. Um fjárlagafrumvarp sagði Logi: „Við erum ýmist að taka velferðina að láni og senda reikninginn á bornin okkar og barnabörn, eða að vanrækja innviðafjárfestingar, og í því felst hinn raunverulegi landsbyggðaskattur. Að bjóða okkur sem veljum að búa á landsbyggðinni ekki upp á sómasamlega vegi, ekki nægilega góða þjónustu, það er líka skattur.“
Mikil umræða var um breytingar á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits, og ræddu Stella Hrönn Jóhannsdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfis- og orkustofnun og Þórhallur Harðarson, formaður Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra þær breytingar sem taka gildi um áramót.
Þinginu lauk með vinnustofu þar sem fulltrúar sveitarfélaganna undirbjuggu sig fyrir Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga og stefnumótun sambandsins.