Fara í efni

SSNE tók þátt í vinnustofu NACEMAP í Limerick

SSNE tók þátt í vinnustofu NACEMAP í Limerick

NACEMAP, eða Northern and Arctic Communities Emergency Management and Preparedness, er þriggja ára samstarfsverkefni sem styrkt er af Interreg Northern Periphery and Arctic áætluninni. Markmið verkefnisins er að styðja norðlæg og afskekkt samfélög við að efla viðbúnað, viðbragðsgetu og endurheimt eftir hamfarir með þátttöku sveitarfélaga, viðbragðsaðila, háskólasamfélagsins og annarra hagsmunaaðila.

Á vinnustofunni í Limerick var sjónum sérstaklega beint að undirbúningi tilraunaæfinga sem fyrirhugaðar eru í október 2026. Þar verða unnar sviðsmyndir sem tengjast annars vegar olíumengun á sjó og hins vegar flóðum. Þátttakendur fóru yfir drög að verkfærum sem þróuð hafa verið innan verkefnisins, meðal annars áhættumat, sjálfsmat, samhæfingu samstarfs milli stjórnvalda og samfélaga og undirbúning samfélagshópa fyrir neyðartilvik.

Vinnustofan var haldin af Munster Technological University í samstarfi við Ambipar og fór fram í Lero/Tierney-byggingunni við Háskólann í Limerick. Dagskráin samanstóð af kynningum, umræðum, spurningum og svörum og þremur vinnulotum þar sem þátttakendur lögðu mat á verkfærin og ræddu hvernig þau nýtast í raunverulegum aðstæðum.

Íslenskir þátttakendur í NACEMAP eru SSNE, Háskólinn á Akureyri og Norðurslóðanetið. Á Íslandi verður verkefnið meðal annars nýtt til að skoða viðbrögð við skriðuföllum og björgun af sjó, viðfangsefni sem hafa skýra tengingu við reynslu og áskoranir samfélaga á Norðurlandi eystra.

„Vinnustofan í Limerick var mikilvægur vettvangur til að prófa hugmyndir, bera saman reynslu milli landa og styrkja samstarf þeirra sem koma að viðbúnaði og viðbrögðum í samfélögum á norðlægum slóðum. Fyrir SSNE skiptir máli að sú þekking sem verður til í verkefninu nýtist beint inn í íslenskan veruleika og þær áskoranir sem samfélög á Norðurlandi eystra standa frammi fyrir,“ segir Rögnvaldur Guðmundsson, verkefnastjóri hjá SSNE og þátttakandi í vinnustofunni.

Með þátttöku í NACEMAP fær SSNE tækifæri til að miðla þekkingu af svæðinu, læra af reynslu samstarfsaðila á Írlandi og í Finnlandi og styrkja tengsl milli sveitarfélaga, viðbragðsaðila og samfélaga þegar kemur að undirbúningi og viðbrögðum við neyðarástandi.

Frekari upplýsingar um verkefnið fást með því að skoða heimasíðu verkefnisins.

Getum við bætt síðuna?