Fara í efni

Aukin þjónusta Bergsins fyrir ungmenni á Norðurlandi eystra

Frá undirrituninni á Dalvík í dag. Mynd: Örlygur
Frá undirrituninni á Dalvík í dag. Mynd: Örlygur

Aukin þjónusta Bergsins fyrir ungmenni á Norðurlandi eystra

Sveitarstjórar allra tíu sveitarfélaganna innan SSNE undirrituðu í dag samstarfssamning við Bergið Headspace um aukna stuðnings- og ráðgjafarþjónustu fyrir ungmenni á Norðurlandi eystra. Undirritunin fór fram á Haustþingi SSNE á Dalvík.

Markmið samstarfsins er að tryggja ungu fólki greiðari aðgang að gjaldfrjálsri ráðgjöf og stuðningi og stuðla að snemmtækri íhlutun. Bergið veitir ungmennum á aldrinum 12 til 25 ára einstaklingsmiðaða ráðgjöf, án skilyrða og endurgjalds.

Samkvæmt samningnum verður reglubundin starfsemi Bergsins á Akureyri, að jafnaði þrjá daga í viku. Þá verður boðið upp á þjónustu mánaðarlega á Ólafsfirði, Húsavík og Grenivík, auk viðveru og fræðslu á Þórshöfn að lágmarki tvisvar á ári. Fjarþjónusta verður einnig í boði eftir þörfum.

Með samstarfinu sameinast sveitarfélögin um að efla og þróa þjónustu við ungt fólk á Norðurlandi eystra og tryggja samfellu, gæði og gott aðgengi til lengri tíma. Samningurinn gildir frá 1. júlí 2026 til 30. júní 2029.

Bergið Headspace er lágþröskulda stuðnings- og ráðgjafarmiðstöð þar sem ungt fólk getur fengið aðstoð á eigin forsendum. Ungmenni og aðstandendur þeirra geta óskað eftir þjónustu í gegnum vef Bergsins, símleiðis eða með tölvupósti.

Getum við bætt síðuna?