Fara í efni

Fréttasafn

Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des

Pistill framkvæmdastjóra - janúar

Þá er janúarmánuður loks yfirstaðinn og við finnum kraftinn sem kemur með hverri birtustundinni sem bætist við. Birtunni fylgir aukinn kraftur og alveg ljóst að SSNE hóf árið af miklum krafti.

Krubbur - Hugmyndahraðhlaup

Krubbur er tveggja daga hugmyndasmiðja sem haldin verður í Hraðinu á Húsavík dagana 8. - 9. mars. Lögð verður áhersla á lausnir sem tengjast nýtingu hráefnis sem fellur til á Húsavík og munu fyrirtæki á svæðinu kynna áskoranir sínar í þeim efnum.

Opið fyrir umsóknir í Byggðarannsóknasjóð

Byggðastofnun auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Byggðarannsóknasjóði.

Akureyrarbær leitar að nýjungagjörnum íbúum sem vilja prófa samgönguapp

Undanfarna mánuði hafa Akureyrarbær og Vistorka verið þátttakendur í evrópska nýsköpunarverkefninu Raptor á vegum EIT Urban Mobility sem parar saman sveitarfélög og sprotafyrirtæki með í því skyni að prófa nýjar lausnir sem styðja við breyttar ferðavenjur.

Culture Moves Europe - samstarf evrópsks listafólks

Markmið Culture Moves Europe er að koma á tengslum og efna til samstarfs evrópsks listafólks. Hægt er að sækja um ferðastyrki á sviði arkitektúrs, menningararfs, hönnunar, myndlistar, bókmenntaþýðinga, tónlistar og sviðslista.

Aðalúthlutun Safnaráðs 2024

Menningarráðherra hefur úthlutað úr aðalúthlutun safnaráðs 2024 og fór úthlutunin fram í Safnarhúsinu í Reykjavík.

Mannamót Markaðsstofa landshlutanna haldið

Mannamót Markaðsstofa landshlutanna sem er árleg ferðakaupstefna var haldin á fimmtudaginn 18. janúar af Markaðsstofum landshlutanna.
Nauðsynlegt er að skrá sig á þetta áhugaverða málþing, hvort sem gestir hyggjast njóta í sal eða fyrir framan skjá. Þingið er gestum að kostnaðarlausu, sem og hádegisverður í Hofi.

Út um borg og bý

Hverju skilar samstarf nágranna og hvað prýðir gott sveitarfélag? Taktu 9. febrúar frá, þér er boðið á öflug erindi og samtal. Fundurinn verður í Hofi en jafnframt í streymi. Skráning er út 7. febrúar 2024.

Verkefnið um líforkuver á Dysnesi flytur að heiman

Verkefni um uppbyggingu líforkuvers í Eyjafirði hefur verið rekið undir stjórn SSNE um nokkuð skeið, með stuðningi Umhverfis- orku og loftslagsráðuneytisins og í samstarfi við Vistorku, Eim, auk þess sem utanaðkomandi ráðgjafar, hérlendis sem erlendis hafa komið að.

Vinnuaðstaða fyrir frumkvöðla á Akureyri

AkureyrarAkademían auglýsir eftir umsóknum um vinnuaðstöðu til að vinna að þróun nýsköpunar- og frumkvöðlaverkefna í samstarfi við Akureyrarbæ. Vinnuaðstaðan er í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, Sunnuhlíð 12, Akureyri, og er án endurgjalds og hugsuð sem styrkur til viðkomandi verkefna. Tímabil sem auglýst er til úthlutunar eru sex mánuðir frá 1. mars 2023 og til 31. ágúst 2024. Umsóknir um heil tímabil hafa að öðru jöfnu forgang en heimilt er að úthluta vinnuaðstöðu til skemmri tíma. Verklagsreglur um stuðninginn má finna hér. Við mat á umsóknum er m.a. tekið mið af eftirfarandi þáttum: Nýsköpunargildi verkefnis. Verkefnið sé í þróun, eiginleg starfsemi ekki hafin og að það sé ekki í samkeppni við starfsemi sem fyrir er á markaði. Verkefnið falli vel að starfsemi AkureyrarAkademíunnar. Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar nk. Nánari upplýsingar er að fá hjá AkureyrarAkademíunni í síma 833-9861 og á netfanginu akak@akak.is
Getum við bætt síðuna?