Fara í efni

Krubbur - Hugmyndahraðhlaup

Krubbur - Hugmyndahraðhlaup

Krubbur er tveggja daga hugmyndasmiðja sem haldin verður í Hraðinu á Húsavík dagana 8. - 9. mars.
Lögð verður áhersla á lausnir sem tengjast nýtingu hráefnis sem fellur til á Húsavík og munu fyrirtæki á svæðinu kynna áskoranir sínar í þeim efnum.
Það kostar ekkert að taka þátt.
 
Fyrirlesarar munu einnig fræða okkur um aðferðir sem nýtast við þróun og framsetningu nýsköpunarhugmynda.
Það er ekki skylda að búa yfir ákveðinni þekkingu og getur því hver sem er á aldrinum 16 ára og eldri tekið þátt.
Veitt eru vegleg verðlaun fyrir bestu hugmyndirnar 🏆
 
Endilega takið dagana frá
Getum við bætt síðuna?