Fara í efni

Mannamót Markaðsstofa landshlutanna haldið

Mannamót Markaðsstofa landshlutanna haldið

Mannamót Markaðsstofa landshlutanna sem er árleg ferðakaupstefna var haldin á fimmtudaginn 18. janúar af Markaðsstofum landshlutanna. Markmið og tilgangur viðburðarins er að skapa vettvang þar sem landsbyggðarfyrirtæki fá tækifæri til að kynna sína þjónustu og vöruframboð fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á höfuðborgarsvæðinu. Ísland hefur mikið upp á að bjóða og Mannamót hjálpa til við að mynda tengsl innan ferðaþjónustunnar. Gestum á Mannamótum gefst kostur á kynna sér það sem mismunandi landshlutar eru að bjóða upp á.

Í ár tóku um 60 fyrirtæki af Norðurlandi þátt í ferðakaupstefnunni og ljóst miðað við fjölda gesta að mikill áhugi er fyrir ferðaþjónustu um allt land.

Getum við bætt síðuna?