Fara í efni

Culture Moves Europe - samstarf evrópsks listafólks

Culture Moves Europe - samstarf evrópsks listafólks

Culture Moves Europe er styrkjapottur sem veitir meðal annars náms- og dvalarstyrki til listafólks á sviði lista og menningar. Markmið Culture Moves Europe er að koma á tengslum og efna til samstarfs evrópsks listafólks. Hægt er að sækja um ferðastyrki á sviði arkitektúrs, menningararfs, hönnunar, myndlistar, bókmenntaþýðinga, tónlistar og sviðslista. Ferðastyrkur er 350€ auk 75€ á dag til uppihalds. Auk þess er hægt að sækja um styrk vegna barna, 100 evrur á dag óháð fjölda barna. Einstaklingar geta sótt um dvöl í 7-60 daga og hópar allt að fimm manns geta sótt um dvöl frá 7-21 dag. Umsóknarfrestur er opinn til 31. maí en umsóknir eru afgreiddar mánaðarlega og umsækjendum svarað.

Markmið Culture Moves Europe er jafnframt að styrkja listasmiðjur í Evrópu til að taka á móti evrópskum listamönnum til að sinna sköpun á sviði arkitektúrs, menningararfs, hönnunar, bókmenntaþýðinga, tónlistar, sviðslista eða myndlistar. Hægt er að sækja um vist fyrir allt að 5 listamenn til dvalar frá 22 dögum í allt að 300 daga. Listamenn sem sækja listasmiðjur skulu koma frá öðru Evrópulandi og vera 18 ára og eldri. Culture Moves Europe er ætlað að styrkja alþjóðlegan blæ listasmiðja. Styrkir eru 35 evrur á dag fyrir hvern listamann til listasmiðju, 25 evrur fyrir uppihald. Ferðakostnaður er greiddur 350 evrur fyrir ferðir undir 5000 km og 700 evrur ef ferðalagið er meira en 5000 km.  

Sjá nánar með því að smella hér.

Rannís heldur utan um verkefni og styrki fyrir hönd Íslands innan Creative Europe.
Hún Ragnhildur Zoega veitir bæði ráðgjöf og upplýsingar um umsóknir, áætlanir og fresti. Endilega sendið henni línu ragnhildur.zoega (hjá) rannis.is

Forvitni er gulls ígildi. Viltu kanna aðra möguleika innan Creative Europe? Gjörðu svo vel: News | On the Move (on-the-move.org)

Getum við bætt síðuna?