Fara í efni

Akureyrarbær leitar að nýjungagjörnum íbúum sem vilja prófa samgönguapp

Akureyrarbær leitar að nýjungagjörnum íbúum sem vilja prófa samgönguapp

Undanfarna mánuði hafa Akureyrarbær og Vistorka verið þátttakendur í evrópska nýsköpunarverkefninu Raptor á vegum EIT Urban Mobility sem parar saman sveitarfélög og sprotafyrirtæki með í því skyni að prófa nýjar lausnir sem styðja við breyttar ferðavenjur. Sjá frétt um verkefnið HÉR.

Það er franska sprotafyrirtækið Instant System sem hefur unnið verkefnið á Akureyri og er afurðin samgönguappið Flæði sem aðstoðar notandann við að komast leiðar sinnar með almenningssamgöngum, hjólandi eða gangandi. Á vormánuðum munu svo Hopp-hjól bætast í flóruna og verður þá hægt að tengja saman mismunandi ferðamáta.

Nú er appið tilbúið fyrir prófanir. Við leitum því að nýjungagjörnum Akureyringum til að prófa virkni appsins og benda á hluti sem betur mættu fara. Ef þú hefur áhuga þá máttu endilega senda Ísak Má Jóhannessyni verkefnastjóra úrgangs- og loftlagsmála tölvupóst á netfangið isakj@akureyri.is.

Getum við bætt síðuna?