Fara í efni
Umsóknarfrestur: Ungmennaráð heimsmarkmiðanna
**Uppfært: UMSÓKNIR Í UNGMENNARÁÐ HEIMSMARKMIÐANNA - FRESTUR FRAMLENGDUR!
Í ljósi aðstæðna og frestun barnaþings hefur kosningum í ungmennaráð heimsmarkmiðanna verið frestað. Vonast er til að geta haldið þeim til streitu á nýjum dagsetningum barnaþings í upphafi árs 2022.
 
Umsóknarfrestur hefur í kjölfarið verið lengdur til 3. desember 2021.
Öll börn fædd á árunum 2006-2009 eru hvött til að sækja um: https://www.surveymonkey.com/r/8KXHG5K

 ______________________________

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Forsætisráðherra fer með skipun ráðsins en óskað er eftir börnum sem eru tilbúin að sitja í ráðinu í tvö ár, frá og með janúar 2022. Átta meðlimir ungmennaráðsins verða kosnir á barnaþingi umboðsmanns barna sem haldið verður í Hörpu dagana 18.-19. nóvember. Þar verða saman komin um 150 börn allstaðar að af landinu og munu þau hljóta kjörlista með upplýsingum um hvern frambjóðenda og persónuupplýsingum. Fjórir meðlimir ráðsins verða svo valdir í kjölfarið, af valnefnd á vegum forsætisráðuneytisins. Val á þeim einstaklingum miðast við að tryggja fjölbreytileika barnanna í ráðinu.

Í ungmennaráðinu sitja tólf börn og skulu þau vera 13-18 ára á meðan á skipunartímabilinu stendur. Öll börnin í ráðinu skulu því vera fædd á árunum 2006-2009. Leitast er eftir því að hafa fjölbreyttan hóp barna í ráðinu, þá sér í lagi með tilliti til kynjahlutfalls og búsetu en áhersla hefur verið lögð á að vera með fulltrúa úr öllum landshlutum. Ráðið heldur að meðaltali einn netfund í mánuði, og hittist í persónu á lengri fundum 3-4 sinnum yfir árið. Forsætisráðuneytið stendur undir öllum kostnaði við ferðalög og fundarhöld og því ekki reiknað með að börn beri kostnað af setu í ráðinu.

Hlutverk ungmennaráðs heimsmarkmiðanna er fyrst og fremst að vinna með málefni tengd heimsmarkmiðunum og sjálfbærri þróun, og vinna að því að koma sjónarmiðum barna á framfæri. Þetta er eina ungmennaráðið sem starfar innan stjórnsýslunnar og gefur það sínar ráðleggingar til ráðuneyta og ýmissa stofnanna eftir óskum. Einnig hefur ráðið greiðan aðgang að ráðuneytunum til að koma sínum málefnum á framfæri og funda til að mynda árlega með ríkisstjórn.

Ungmennaráðið heldur á lofti ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, þá sér í lagi hvað varðar áhrif barna á ákvarðanatöku og rétt þeirra til að láta í ljós skoðanir sínar.

 

Umsóknarfrestur: Ungmennaráð heimsmarkmiðanna