Fara í efni

Fundargerð 83. fundar stjórnar SSNE - 7. maí 2026

07.05.2026

Fundur haldinn fimmtudaginn 7. maí 2026 í Ráðhúsi Akureyrarbæjar og á Teams. Hófst fundurinn kl. 14.00.

Fundinn sátu: Lára Halldóra Eiríksdóttir, formaður, Helena Eydís Ingólfsdóttir, Guðjón M. Ólafsson, Axel Grettisson, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir í forföllum Hildu Jönu Gísladóttur, Katrín Sif Ingvarsdóttir (á Teams), Hermann Ingi Gunnarsson, Jóna Björg Hlöðversdóttir, Mirjam Blekkenhorst (á Teams), Þórunn Sif Harðardóttir, Þröstur Friðfinnsson og Albertína Friðbjörg Elíasdóttir framkvæmdastjóri sem ritaði fundargerð.

Í upphafi fundarins mættu Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrarbæjar og Sumarliði Helgason, forstöðumaður hjá Akureyrarbæ til fundarins og buðu stjórnina velkomna til Akureyrar og kynntu ýmis verkefni sem Akureyrarbær hefur staðið fyrir og hafa vakið athygli, m.a. verið tilnefnd til Nýsköpunarverðlauna hins opinbera og til Íslensku vefverðlaunanna.

  1. Farsældarráð Norðurlands eystra – staða verkefnis
    Þorleifur Kr. Níelsson, verkefnastjóri farsældar mætti til fundarins og kynnti stöðu mála varðandi verkefni farsældarráðs Norðurlands eystra.
    Stjórn þakkar Þorleifi fyrir kynninguna.

  2. Ungmennaþing Norðurlands eystra
    Ungmennaþing Norðurlands eystra 2026 var haldið á Húsavík í apríl. Þorleifur Kr. Níelsson og Elva Gunnlaugsdóttir verkefnastjórar SSNE mættu til fundarins og greindu frá framkvæmd þingsins og helstu niðurstöðum þess.
    Stjórn þakkar fyrir kynninguna og felur framkvæmdastjóra að senda skýrslu um Ungmennaþing 2026 til kynningar í sveitarstjórnum á starfssvæði SSNE þegar hún liggur fyrir.

  3. Sóknaráætlun Norðurlands eystra – Áhersluverkefni
    Lagðar fram tillögur að áhersluverkefnum í samræmi við umræðu á síðasta stjórnarfundi. Elva Gunnlaugsdóttir verkefnastjóri SSNE sat fundinn undir þessum lið. Þá mætti Arnheiður Jóhannsdóttir frá Markaðsstofu Norðurlands einnig til fundarins til að ræða verkefni sem tengjast Markaðsstofunni.
    Stjórn SSNE þakkar kynningarnar og samþykkir eftirfarandi áhersluverkefni:
    Laufið loftslagsbókhald – 3.500.000 kr.
    Lýðskóli á Raufarhöfn – 3.250.000 kr.
    Frá móttöku til inngildingar – 7.500.000 kr.
    Farsældardagur – 1.500.000 kr.
    Skemmtiferðaskip – 3.000.000 kr.
    Böðin – 3.500.000 kr.

    Þá samþykkir stjórn tvö verkefni, til viðbótar við Flugsafnið á Akureyri sem samþykkt var á fyrri fundi stjórnar, sem nýta aukafjárveitingu frá fjárlaganefnd Alþingis upp á 35 m.kr.. Þau verkefni eru:
    Menningarbyggðin – 10.000.000 kr.
    Virkjum íbúana – 19.000.000 kr.

    Mirjam Blekkenhorst yfirgaf fundinn kl. 15:32. Mirjam tók ekki þátt í afgreiðslu 3. liðar.

  4. Haustþing SSNE 2026
    Rætt um Haustþing SSNE 2026. Fyrir fundinum lá tillaga um að þingið verði haldið á tímabilinu 7.-18. september. Jafnframt rætt um dagskrá þingsins en ný stjórn SSNE mun ákveða hana endanlega þegar hún tekur til starfa.
    Stjórn samþykkir að haustþingið verði haldið á Dalvík þann 9. september.

  5. Uppbyggingarsjóður Sóknaráætlunar Norðurlands eystra
    Lögð fram til samþykktar tillaga að starfsreglum Úthlutunarnefndar Uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra og einnig drög að úthlutunarreglum vegna styrkja úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra 2024-2029.
    Stjórn samþykkir framlagðar tillögur.

  6. Ársþing SSNE 2026
    Lögð fram staðfestingar þinggerð Ársþings SSNE sem haldið var rafrænt 26. mars síðastliðinn. Einnig rætt um hvort vinna eigi þingsköp fyrir þing SSNE.
    Stjórn samþykkir framlagða þinggerð Ársþings SSNE 2026 og felur framkvæmdastjóra að senda hana til sveitarfélaganna innan SSNE til kynningar.
  7. Eimur – samstarfssamningur
    Lögð fram drög að nýjum þriggja ára samningi um rekstur Eims fyrir árin 2027-2029.
    Framkvæmdastjóra falið að vinna málið áfram.

  8. Mál til kynningar
    1. Fundargerð 1. Fundar Farsældarráðs Norðurlands eystra
    2. Fundargerð 2. Fundar Farsældarráðs Norðurlands eystra
    3. Fundargerð 3. Fundar Farsældarráðs Norðurlands eystra
    4. Fundargerð 4. Fundar Farsældarráðs Norðurlands eystra
    5. Fundargerð 5. Fundar Farsældarráðs Norðurlands eystra
    6. Stjórn Markaðsstofu Norðurlands eystra fundargerð 27. febrúar 2026
    7. fundargerð Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra
    8. Fundargerð 997. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
    9. Fundargerð 996. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
    10. fundargerð stjórnar SASS
    11. fundargerð stjórnar SASS
    12. Púlsinn – Norðurland eystra í tölum, 2. útgáfa.
    13. Púlsinn – Norðurland eystra í tölum, 3. útgáfa
  9. Mál til umsagnar
    1. Loftslagslög, 595. mál.
      Stjórn samþykkir framlögð drög að umsögn og felur framkvæmdastjóra að senda umsögnina inn fyrir hönd stjórnar.
    2. Fjármálaáætlun fyrir árin 2027-2031, 577. mál.
      Stjórn samþykkir framlögð drög að umsögn og felur framkvæmdastjóra að senda umsögnina inn fyrir hönd stjórnar.
    3. Stofnun atvinnuveganna, 568. mál.
      Stjórn staðfestir umsögnina sem áður hafði verið afgreidd í tölvupósti. Umsögn SSNE.
    4. Leiðarmerki og öryggi siglinga, 570. mál.
      Stjórn samþykkir að senda ekki inn umsögn um þetta mál.
    5. Stefna og framkvæmdaáætlun um farsæld barna til ársins 2030, 579. mál. Sameiginleg umsögn framkvæmdastjóra landshlutasamtakanna.
      Lagt fram til kynningar.
    6. Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits), 582. mál.
      Stjórn staðfestir umsögnina sem áður hafði verið afgreidd í tölvupósti. Umsögn SSNE.
    7. Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um Byggðastofnun (Samráðsgátt).
      Stjórn felur framkvæmdastjóra að vinna drög að umsögn og leggja fyrir á næsta stjórnarfundi.
    8. Drög að reglugerð um Byggðastofnun (Samráðsgátt).
      Stjórn felur framkvæmdastjóra að vinna drög að umsögn og leggja fyrir á næsta stjórnarfundi.

Í lok fundar þakkaði formaður Akureyrarbæ fyrir móttökurnar og stjórn og starfsfólki SSNE fyrir vel unnin störf á kjörtímabilinu og dýrmætt framlag þeirra til starfsemi SSNE.

Fundi slitið kl. 16:30.

Getum við bætt síðuna?