Fundargerð 5. fundar Farsældarráðs Norðurlands eystra - 08.04.26
Dagsetning: 8. apríl 2026
Tími: Kl. 15:00 – 16:15
Fundarstaður: Fjarfundur (Teams)
Fundarstjóri: Karólína Gunnarsdóttir, formaður Farsældarráðs Norðurlands eystra
Ritari: Þorleifur Kr. Níelsson, verkefnastjóri Farsældarráðs Norðurlands eystra
Fundinn sátu:
Anna Rósa Friðriksdóttir, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Bjarki Ármann Oddsson, Guðrún Hallfríður Björnsdóttir, Hanna Valdís Hólmarsdóttir, Hilma Steinarsdóttir, Hjördís Albertsdóttir, Ingibjörg Lára Símonardóttir, Jana Katrín Merenda, Jón Höskuldsson, Karólína Gunnarsdóttir, Snæbjörn Ómar Guðjónsson, Svava Hrönn Magnúsdóttir, Vilborg Þórarinsdóttir (gestur frá Barnaverndarþjónustu Norðurlands eystra), Þorgeir Rúnar Finnsson, Þóra Pétursdóttir og Þorleifur Kr. Níelsson.
1. Kynning Ungmennaráðs Fjallabyggðar
Hanna Valdís Hólmarsdóttir, formaður Ungmennaráðs Fjallabyggðar og Jana Katrín Merenda meðlimur ráðsins, kynntu starfsemi Ungmennaráðs Fjallabyggðar. Farið var yfir skipulag ráðsins, verkefni þess og þátttöku ungmenna í ráðinu. Það kom fram að ungmennaráðið fundar að jafnaði einu sinni í mánuði utan sumartíma og er skipað fulltrúum úr grunn- og framhaldsskóla, auk varamanna. Ungmennin fá greitt fyrir fundarsetu og hafa unnið að ýmsum verkefnum, meðal annars farið í fræðslu- og kynnisferð til Danmerkur þar sem þau kynntu sér starfsemi nemendaráða og fengu innblástur til að efla klúbbastarf heima fyrir. Í umræðum var lögð áhersla á mikilvægi þess að ungmenni sitji lengur en eitt ár í ráðinu til að tryggja samfellu og aukna þekkingu innan hópsins. Einnig kom fram að ungmennaráðið hefur átt í samráði við sveitarstjórn og nýtur stuðnings við úrvinnslu mála.
2. Erindi um starfsemi Barnaverndarþjónustu Norðurlands eystra
Vilborg Þórarinsdóttir, forstöðumaður Barnaverndarþjónustu Norðurlands eystra, flutti erindi um starfsemi þjónustunnar. Kom fram að barnaverndarþjónustan nær nú yfir 11 sveitarfélög með Akureyrarbæ sem leiðandi sveitarfélag. Greint var frá mikilli aukningu í tilkynningum til barnaverndar frá árinu 2021, einkum vegna vanrækslu, ofbeldis og áhættuhegðunar barna, þar sem vímuefnavandi foreldra er algengasta ástæða tilkynninga. Vilborg lýsti samþættingu félags- og barnaverndarþjónustu, þar sem verklagsreglur og sameiginleg skjöl eru nýtt til að tryggja betri yfirsýn og samvinnu milli kerfa. Barnavernd starfar í nánu samstarfi við lögreglu, heilbrigðisþjónustu, kvennaathvarf og aðra aðila, meðal annars með sértækum teymum fyrir flókin mál. Þá greindi hún frá opnun fjölskylduheimilisins Sólberg á síðasta ári sem þjónustar allan landshlutann. Það kom fram í máli Vilborgar að svo virðist sem dregið hafi úr þörf fyrir vistun barna utan heimilis vegna tilkomu Sólbergs og þar með hefur fósturvistunar kostnaður sveitarfélaga lækkað nokkuð á móti. Þá ræddi Vilborg um að það hafi verið jákvætt skref í barnaverndarþjónustu þegar barnaverndarnefndir sveitarfélaga voru lagðar niður. Í stað þeirra nefnda komu umdæmisráð barnaverndar sem hafa eflt fagmennsku í vinnslu þyngstu barnaverndarmálanna.
3. Tökum stöðuna – vinna baklandshópa, heimaverkefni og aðgerðaáætlun
Farið var yfir stöðu vinnu baklandshópa vegna heimaverkefnis sem kynnt var á 4. fundi. Kom fram að sumir hópar hafa skilað drögum að aðgerðum en aðrir eru enn með heimaverkefnið í vinnslu. Rætt var um mikilvægi þess að aðgerðaáætlun farsældarráðsins verði hnitmiðuð, raunhæf og með skýrum forgangsröðunum. Jafnframt var lögð áhersla á að aðgerðir séu mælanlegar og taki mið af ólíkum aðstæðum og stærð sveitarfélaga á Norðurlandi eystra. Flestir baklandshópar stefna að því að vinna sína heimavinnu fyrir næsta fund farsældarráðs í maí nk.
4. Úrræðalisti fyrir Norðurland eystra
Verkefnastjóri kynnti hugmynd um að vinna sameiginlegan úrræðalista fyrir Norðurland eystra. Í umræðum komu fram skiptar skoðanir um þessa hugmynd. Sumum leyst vel á þetta á meðan öðrum fannst þetta erfitt í framkvæmd. Ekki náðist samstaða um að vinna þessa hugmynd nánar á þessum tímapunkti og verður hún því lögð til hliðar þar til ráðið hefur ákveðið annað.
5. Samráð og fundir með baklandshópum
Verkefnastjóri kynnti áform um að hann haldi sérfundi með fulltrúum í farsældarráði og þeirra baklandshópum í maí og júní, með það að markmiði að efla samráð, fá fram fjölbreytt sjónarmið og styðja áframhaldandi vinnu við aðgerðaáætlun farsældarráðs. Hugmyndin fékk góðar undirtektir og verður henni hrint í framkvæmd af verkefnastjóra.
6. Samráð við ungmennaráð á Norðurlandi eystra
Verkefnastjóri ræddi um mikilvægi þess að fá raddir ungmenna markvisst inn í starf farsældarráðsins. Verkefnastjóri lagði fram tillögu um að send verði formleg erindi til allra ungmennaráða á Norðurlandi eystra þar sem óskað verður eftir skriflegum svörum til að tryggja að sjónarmið unga fólksins nýtist við mótun aðgerðaáætlunar ráðsins. Ráðið samþykkti þessa tillögu og var verkefnastjóra falið að senda erindi til allra ungmennaráða á Norðurlandi eystra á næstunni.
7. Dagskrártillögur og mæting fulltrúa farsældarráðs á fundi ráðsins
Verkefnastjóri minnti á að fulltrúar í farsældarráði geta sent inn tillögur að dagskrá fyrir fundi ráðsins. Það er mikilvægt að fulltrúar eigi frumkvæði að því að setja mál á dagskrá svo að fundir ráðsins nýtist sem best. Þá minnti verkefnastjóri á mikilvægi þess, að ef fulltrúar komast ekki á fundi, þá afboði þeir sig með góðum fyrirvara og tryggið þátttöku varamanns með áframsendingu fundarboðs.
Fundi slitið: Kl. 16:15
Næsti fundur: Verður haldinn í maí 2026 samkvæmt samþykktri fundadagskrá ráðsins.