Fundargerð 4. fundar Farsældarráðs Norðurlands eystra - 11. mars 2026
Dagsetning: 11. mars 2026
Tími: Kl. 15:00 – 16:55
Fundarstaður: Fjarfundur (Teams)
Fundarstjóri: Karólína Gunnarsdóttir, formaður Farsældarráðs Norðurlands eystra
Ritari: Þorleifur Kr. Níelsson, verkefnastjóri Farsældarráðs Norðurlands eystra
Fundinn sátu:
Aðalheiður Alex Ósk Kristjánsdóttir, Bjarki Ármann Oddsson, Gísli Bjarnason, Halldór Tumi Ólason, Helga Sigurbjörg Gunnarsdóttir, Hilma Steinarsdóttir, Ingunn Eir Eyjólfsdóttir, Karólína Gunnarsdóttir, Kristján Sturluson, María Aðalsteinsdóttir, Svava Hrönn Magnúsdóttir, Þorgeir Rúnar Finnsson og Þorleifur Kr. Níelsson, auk Aðalheiðar Jónsdóttur og Maríu Bjarnadóttur (gestir frá Heilbrigðisstofnun Norðurlands – HSN).
Dagskrá og efnisatriði:
1. Erindi um starfsemi sálfélagslegrar þjónusta fyrir börn á HSN
Aðalheiður Jónsdóttir, teymisstjóri sálfræðiþjónustu barna (fyrsta stigs þjónustu), og María Bjarnadóttir, teymisstjóri barnageðteymis HSN (annars stigs þjónustu), kynntu starfsemi sálfélagslegrar þjónustu barna á HSN. Fjallað var um skipulag og hlutverk fyrsta og annars stigs þjónustu, þrepaskipta nálgun, ferli tilvísana, stöðu biðlista og helstu áskoranir í þjónustunni. Lögð var áhersla á mikilvægi snemmtækrar íhlutunar, forvarna og samfellu í þjónustu, sem og samstarf við skóla, félagsþjónustu, barnavernd og aðra þjónustuaðila. Þá kom fram að þegar um alvarlegan bráðan geðrænan vanda er að ræða skal leita til bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri (SAk), þar sem öll bráðaþjónusta fer fram. Barnageðteymi HSN er ráðgefandi í slíkum málum og vinnur þau í samráði við SAk og eftir atvikum bráðateymi Barna- og unglingageðdeildar Landspítala (BUGL).
Í umræðum í kjölfar kynninganna var rætt um aðgengi barna að þjónustu og mikilvægi þess að efla þjónustu í heimabyggð. Auk þess var rætt um hugsanlegan skort á þjónustu við börn með ýmsar fatlanir og/eða taugaþroskaraskanir (ADHD og einhverfa).
Í tengslum við umræðuna, lagði verkefnastjóri farsældarráðs það til við ráðið að í stað þess að gefa út sérstaka ályktun um stöðu geðheilbrigðisþjónustu barna í landshlutanum, yrði efling geðheilbrigðisþjónustu barna sett fram sem hluti af aðgerðaáætlun farsældarráðs þegar hún mun síðar líta dagsins ljós. Farsældarráð samþykkti ofangreinda tillögu verkefnastjóra.
2. Tökum stöðuna – umræða um baklandshópa, hindranir og tækifæri
Farið var hringinn og fulltrúar greindu frá stöðu vinnu baklandshópa. Kom fram að vinna er mislangt komin eftir svæðum en almennt ríkir vilji til áframhaldandi samráðs, forvarna og aukins samstarfs. Sumir baklandshópar gætu þurft aðstoð frá verkefnastjóra farsældarráðs til að koma vinnunni af stað.
3. Heimaverkefni baklandshópa
Verkefnastjóri kynnti heimaverkefni fyrir baklandshópa sem felur í sér kortlagningu á forvörnum, snemmtækum stuðningi og samstarfsleiðum, ásamt tillögum að forgangsröðun aðgerða í þágu farsældar barna. Rætt um að heimaverkefnið geti síðan nýst fyrir aðgerðaáætlun ráðsins. Fundarfólk tók vel í þessa hugmynd og mun verkefnastjóri senda heimaverkefnið til ráðsins í tölvupósti.
4. Undirbúningshópur farsældarviðburðar
Undirbúningshópur farsældarviðburðar farsældarráðs greindi frá stöðu undirbúnings. Rætt var um mögulega dagskrá, markhópa og fyrirkomulag viðburðarins, þar á meðal að skipta deginum í opinn hluta og vinnuhluta fyrir fagfólk. Einnig var rætt um tímasetningu viðburðarins, með áherslu á haustið 2026, ásamt því að horft er til Akureyrar hvað varðar staðsetningu.
5. Staðsetning, tímasetning og framkvæmd fyrsta staðarfundar
Verkefnastjóri farsældarráðs lagði til að fyrsti staðarfundur farsældarráðs yrði í maí nk. í stað apríl eins og áður hafi verið ákveðið. Þá var lagt til að staðarfundurinn í maí yrði á Akureyri. Undirbúningur staðarfundar verður unninn áfram í samráði við formann og varaformann ráðsins. Ráðið samþykkti þetta fundarplan fyrir fyrsta staðarfundinn.
6. Önnur mál
- Fram kom fyrirspurn frá Halldóri Tuma Ólasyni, fulltrúa lögreglu í farsældarráði, varðandi ástæður þess að fundir ráðsins eru tímasettir seinnipart dags. Í svari verkefnastjóra kom fram að sú tímasetning sé valin til að tryggja mögulega þátttöku ungmenna í störfum ráðsins.
- Fram kom fyrirspurn frá Bjarka Ármanni Oddssyni, fulltrúa Eyjafjarðarsveitar í farsældarráði, um hvort verkefnastjóri farsældarráðs gæti komið á fundi baklandshópa. Verkefnastjóri svaraði því til að hann væri reiðubúinn til að mæta á slíka fundi eftir þörfum.
Fundi slitið kl. 16:55.
Næsti fundur verður haldinn í apríl 2026 samkvæmt samþykktri fundadagskrá ráðsins.