Fara í efni

Fundargerð 3. fundar Farsældarráðs Norðurlands eystra - 11. febrúar 2026

11.02.2026

Dagsetning: 11. febrúar 2026
Tími: Kl. 15:00 – 16:50
Fundarstaður: Fjarfundur (Teams)
Fundarstjóri: Karólína Gunnarsdóttir, formaður Farsældarráðs Norðurlands eystra
Ritari: Þorleifur Kr. Níelsson, verkefnastjóri Farsældarráðs Norðurlands eystra

Fundinn sátu:

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Bjarki Ármann Oddsson, Eyrún Rafnsdóttir, Guðný Friðriksdóttir, Halldór Tumi Ólason, Haukur Skúli Óttarsson, Hilma Steinarsdóttir, Hjördís Albertsdóttir, Jón Höskuldsson, Karólína Gunnarsdóttir, Kristín Harpa Friðriksdóttir, Kristján Sturluson, María Aðalsteinsdóttir, Ragný Þóra Guðjohnsen (gestur), Snæbjörn Ómar Guðjónsson, Svava Hrönn Magnúsdóttir, Þorgeir Rúnar Finnsson og Þorleifur Kr. Níelsson.

Dagskrá og efnisatriði:

1. Erindi Ragnýjar Þóru Guðjohnsen: Markverðar niðurstöður úr Íslensku æskulýðsrannsókninni fyrir Norðurland eystra

Ragný Þóra Guðjohnsen, dósent við deild menntunar og margbreytileika Háskóla Íslands, flutti erindi þar sem hún kynnti helstu niðurstöður úr Íslensku æskulýðsrannsókninni fyrir Norðurland eystra. Fjallað var um stöðu og þróun þátta sem tengjast farsæld barna og ungmenna, m.a. líðan, félagsleg tengsl, skólasókn og þátttöku, ásamt áhættu- og verndandi þáttum. Í umræðum eftir erindið var lögð áhersla á að nýta niðurstöðurnar sem grunn við vinnu fjögurra ára áætlunar um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða.

2. Kynning ungmennaráðs Eyjafjarðarsveitar

Haukur Skúli Óttarsson og Kristín Harpa Friðriksdóttir kynntu starfsemi ungmennaráðs Eyjafjarðarsveitar. Þau greindu frá helstu áherslum og verkefnum ungmennaráðsins. Einnig fjölluðu þau um það hvernig ungt fólk kemur að málefnum í sveitarfélaginu og tækifærum sem er til staðar til að efla ungmennaráðið enn frekar. Farsældarráð þakkaði fyrir kynninguna og var rætt um mikilvægi reglulegs samráðs við ungmennaráð í landshlutanum, bæði við mótun aðgerðaáætlunar og við eftirfylgni hennar.

3. Tökum stöðuna – umræða um baklandshópa, hindranir og tækifæri

Farið var hringinn og fulltrúar lýstu stöðu vinnu baklandshópa hjá sínum sveitarfélögum og stofnunum. Kom fram að víða er vinnan komin vel af stað en annars staðar er hún í mótun. Áhersla var lögð á að baklandshópar verði virkir vettvangar til að greina áskoranir, móta hugmyndir að aðgerðum og tryggja tengingu við daglega þjónustu.

4. Aðgangur að skýrslum og upplýsingum vegna áætlunar um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða

Þorleifur verkefnastjóri fór yfir hvernig ráðið geti tryggt gott aðgengi að gögnum, skýrslum og upplýsingum sem nýtast við vinnslu áætlunar um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna. Áréttað var að fulltrúar komi á framfæri við verkefnastjóra lykilgögnum sem varða farsæld barna í landshlutanum (skýrslur, tölfræði, greiningar, mat á þjónustuþörf o.fl.) þannig að hægt sé að byggja ákvarðanir á sem bestum grunni.

5. Farsældarviðburður Farsældarráðs Norðurlands eystra

Rætt var um næstu skref varðandi farsældarviðburð á vegum ráðsins. Samþykkt var að búa til undirbúningshóp varðandi þetta verkefni og að verkefnastjóri taki að sér að halda utan um starf hópsins. Þau sem gáfu kost á sér í undirbúningshópinn eru: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Karólína Gunnarsdóttir, María Aðalsteinsdóttir og Snæbjörn Ómar Guðjónsson. Ef fleiri fulltrúar farsældarráðs vilja taka þátt í þessum hópi síðar er það velkomið.

6. Umræða um drög að ályktun ráðsins um aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu barna í landshlutanum

Farið var yfir það sem rætt var undir dagskrárliðnum önnur mál á 2. fundi farsældarráðs dags. 14.01.26 og varðar aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu barna á Norðurlandi eystra. Samþykkt var að fresta gerð ályktunar farsældarráðs um þetta málefni. Jafnframt var samþykkt að óska eftir því að forstöðumaður sálfélagslegrar þjónustu á HSN komi á næsta fund farsældarráðs til að kynna þá geðheilbrigðisþjónustu barna sem í boði er á Norðurlandi eystra. Verkefnastjóra var falið að óska eftir ofangreindu erindi.

7. Önnur mál

Engin önnur mál voru tekin fyrir.

Fundi slitið: Kl. 16:50

Næsti fundur verður haldinn í mars 2026 samkvæmt samþykktri fundadagskrá ráðsins.

Getum við bætt síðuna?