Fara í efni

Fundargerð 2. fundar Farsældarráðs Norðurlands eystra - 14. janúar 2026

14.01.2026

Dagsetning: 14. janúar 2026
Tími: Kl. 15:00 – 16:40
Fundarstaður: Fjarfundur (Teams)
Fundarstjóri: Karólína Gunnarsdóttir, formaður Farsældarráðs Norðurlands eystra
Ritari: Þorleifur Kr. Níelsson, verkefnastjóri Farsældarráðs Norðurlands eystra

Fundinn sátu:

Aðalheiður Alex Ósk Kristjánsdóttir, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Bjarki Ármann Oddsson, Eyrún Rafnsdóttir, Fanney Jónsdóttir (gestur), Fríða Björg Tómasdóttir, Guðný Friðriksdóttir Halldór Tumi Ólason, Helga Sigurbjörg Gunnarsdóttir, Halldóra Jóhanna Friðbergsdóttir, Jón Höskuldsson, Karólína Gunnarsdóttir, Kristján Sturluson, María Aðalsteinsdóttir, Ragnheiður Alís Ragnarsdóttir, Sigríður Valdimarsdóttir, Snæbjörn Ómar Guðjónsson, Svava Hrönn Magnúsdóttir, Þorgeir Rúnar Finnsson og Þorleifur Kr. Níelsson.

Dagskrá og efnisatriði:

1. Erindi Fanneyjar Jónsdóttur: Samþættingarteymi velferðarsviðs Akureyrarbæjar

Fanney Jónsdóttir, teymisstjóri í samþættingarteymi velferðarsviðs Akureyrarbæjar, kynnti hlutverk og starfsemi teymisins. Hún fór yfir hvernig þjónusta í þágu farsældar barna er stigskipt og hvernig mál á 2. stigi eru tekin fyrir af samþættingarteyminu. Beiðnir berast í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar og teyminu ber að úthluta málum til málstjóra.

Fanney lýsti verkferlum málstjóra og helstu samstarfsaðilum innan og utan kerfisins. Hún greindi frá því að haustið 2025 voru um 109 mál til vinnslu á 1. stigi farsældar. Á sama tíma voru um 180 mál til vinnslu á 2. stigi farsældar.

2. Kynning ungmennaráðs Akureyrarbæjar

Fríða Björg Tómasdóttir og Ragnheiður Alís Ragnarsdóttir kynntu starfsemi ungmennaráðsins. Þær greindu frá helstu verkefnum ráðsins, aðkomu að stefnumótun og þátttöku í umsögnum. Fríða og Ragnheiður lögðu áherslu á nauðsyn þess að ungennaráð fái aukið vægi innan stjórnsýslu og nefnda sveitarfélagsins. Þá er þörf á því að ungmennaráð fái fleiri mál til umsagnar og vinnslu. Þar með næðist að efla enn frekar vægi ungmennaráðs í stjórnsýslu sveitarfélagsins.

3. Tökum stöðuna – umræða um baklandshópa, hindranir og tækifæri

Fundarmenn lýstu stöðu baklandshópa í sínum sveitarfélögum og stofnunum. Á flestum stöðum eru baklandshóparnir komir af stað, annars staðar eru þeir í mótun. Lítið heyrðist af því að hindranir væri til staðar hvað varðar vinnu baklandshópana. Umræða þessara hópa er að skapa góðar hugmyndir sem munu nýtast farsældarráðinu á næstu misserum. Flestir fundarmenn sammála um að vinna farsældarráðs geti leitt af sér styttri samskiptaleiðir bæði innan kerfa og á milli þeirra. Í umræðunni skapaðist sameiginlegur þráður um nauðsyn þess finna leiðir til að minnka hraða og álag innan fjölskyldna, auka samveru og samskipti fjölskyldna, efla foreldra í sínu uppeldishlutverki ásamt því að temja aðgang barna að tækninni.

4. Undirbúningur Ungmennaþings SSNE 2026

Þorleifur verkefnastjóri kynnti undirbúning og drög að dagskrá og skipulagi Ungmennaþings SSNE 2026 sem fyrirhugað er á komandi vordögum. Fundarmenn sammála um mikilvægi þess að hlusta á raddir barna og ungmenna af væntanlegu ungmennaþingi.

5. Vill Farsældarráðið standa fyrir farsældardegi eða farsældarviku?

Rætt var um hvort ráðið vilji standa að viðburði á borð við farsældardag eða viku. Áhugi kom fram og samkomulag náðist um að skoða málið frekar í baklandshópum og ræða þennan fundarlið nánar á næsta fundi farsældarráðs.

6. Önnur mál

  • Snæbjörn Ómar Guðjónsson fulltrúi SAk í farsældarráði greinir frá því að hann var beðinn um að koma á framfæri skilaboðun til farsældarráðs frá hópi sem hann fundað með ásamt sínu fólki úr stýrihópi farsældar barna á SAk dags. 12.01.26. Á umræddum fundi voru fulltrúar frá SAk, HSN og Velferðarsviði Akureyrarbæjar, að ræða um málefni sem tengjast farsæld barna. Snæbjörn greindi frá því að fram komu áhyggjur á fundinum varðandi aðgengi að geðþjónustu fyrir börn á Norðurlandi eystra. Þá greindi Snæbjörn frá því að hann hafi dags. 13.01.26 verið á fundi með þjónustuveitendum á Austurlandi, á þeim fundi var fjallað um sömu áhyggjur. Samþykkt var að fela Verkefnastjóra Farsældarráðs Norðurlands eystra að búa til drög að ályktun um þetta málefni sem yrði rædd á næsta fundi ráðsins.
  • Verkefnastjóri farsældarráðs áréttaði mikilvægi þess að þeir sem sitja í ráðinu hugi að því að koma mikilvægum skýrslum, upplýsingum og tölum er varða farsæld barna til verkefnastjóra. Með því móti fær ráðið betri yfirsýn yfir þær upplýsingar sem nú þegar eru til á Norðurlandi eystra m.t.t. gerð áætlunar um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna.

Fundi var slitið kl. 16:40.

Næsti fundur verður haldinn í febrúar 2026 samkvæmt samþykktri fundadagskrá ráðsins.

Getum við bætt síðuna?