Fara í efni
Umsóknarfrestur: Startup Landið

Opið er fyrir umsóknir í nýsköpunarhraðalinn Startup Landið 2026. Hraðallinn er sérsniðinn að frumkvöðlum á landsbyggðinni og er kjörinn vettvangur fyrir einstaklinga og teymi sem ganga með metnaðarfullar viðskiptahugmyndir og vilja láta til sín taka.

Umsóknarfrestur er til og með 1. september næstkomandi.

Tengja saman náttúru, nýtingu og nýsköpun

Startup Landið er nýsköpunarhraðall sem leitar að hugmyndum sem styrkja samfélög, skapa störf og skila raunverulegum verðmætum um land allt. Sérstaða hraðalsins felst í því að brúa bilið á milli náttúru, nýtingar og nýsköpunar, áherslur sem ríma vel við þau tækifæri sem víða er að finna á landsbyggðinni.

Að skipulagningu verkefnisins standa samtök landshluta hringinn í kringum landið, þar á meðal SSNE. Markmiðið er að skapa öflugan vettvang fyrir frumkvöðla og áhugafólk um nýsköpun utan höfuðborgarsvæðisins.

Markviss fræðsla og sterkt stuðningsumhverfi

Hraðallinn hefst þann 24. september og stendur til 5. nóvember 2026. Þau teymi sem valin verða til þátttöku fá aðgang að markvissri fræðslu, faglegri ráðgjöf og sterku stuðningsumhverfi sem styður við þróun hugmynda og hjálpar þeim að komast á næsta stig.

Reynslan sýnir að teymi af landsbyggðinni hafa náð góðum árangri í sambærilegum verkefnum, bæði innan héraðs og utan. Mörg þeirra hafa stofnað fyrirtæki eða þróað hugmyndir sínar áfram í raunhæfan rekstur.

SSNE hvetur alla, jafnt einstaklinga sem teymi sem eru með hugmynd eða eru þegar komin af stað með verkefni að sækja um. Startup Landið er einstakt tækifæri til að þróa hugmyndir, fá leiðsögn sérfræðinga og byggja upp tengslanet og verðmæti til framtíðar.

Umsóknir fara fram á vefnum startuplandid.is og er umsóknarfrestur til og með 1. september.

Þau sem óska eftir frekari upplýsingum eða vilja ræða hugmyndir sínar nánar er bent á að hafa samband við Önnu Lind Björnsdóttur, verkefnastjóra hjá SSNE, annalind@ssne.is
Umsóknarfrestur: Startup Landið