Fara í efni
Umsóknarfrestur: Flytjendastyrkir Tónlistarsjóðs

Flytjendastyrkir eru veittir úr deild lifandi flutnings og eru styrkir til tónleikahalds og tónleikaferða innanlands. Umsóknarfrestur er til kl. 15:00 15. apríl 2026. 

Þetta eru verkefnastyrkir á bilinu 250.000 kr - 3.000.000 kr og eru styrkir til tónleikahalds innanlands og tengdrar markaðssetningar. Styrkirnir eru veittir beint til tónlistarfólks eða umbjóðenda þess. Markmið stykjanna er að stuðla að nýliðun og fjölbreytni í tónlist og þar með efla tónlistarlíf hér á landi.

Jafnframt er hægt að sækja um Langtímasamninga í þessari deild. Upphæð langtímasamninga eru frá 1.000.000 kr til 6.000.000 kr á ári í tvö eða þrjú ár. Sjá nánar hér

Úthlutunarnefnd metur út frá markmiðum og áherslum, hér má finna nánari upplýsingar um mælikvarða.
Hér má finna allar nánari upplýsingar um styrkjaflokkinn og hlekk á umsóknargáttina.

Allar fyrirspurnir varðandi tónlistarsjóð → styrkir@icelandmusic.is og svo er kannski búið að spyrja og svara hér því sama og þú ert að velta fyrir þér.
Auk þess sem leita má ráðgjafar hjá starfsfólki SSNE varðandi umsóknarskrif, sendu línu á ssne@ssne.is

Þann 15. apríl kl. 15:00 eru jafnframt umsóknarfrestir Tónlistarsjóðs úr eftirfarandi deildum:

Auk þess er umsóknarfrestur um ferðastyrki úr deild útflutnings 1. apríl og 1. júní.

Hlutverk Tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist samkvæmt Tónlistarlögum og reglum um Tónlistarsjóð.

Sjóðurinn skal stuðla að kynningu á íslensku tónlistarfólki og tónsköpun þeirra hér á landi sem erlendis. Tónlistarsjóður heyrir undir menningar-, nýsköpunar og viðskiptaráðuneytið og er í umsýslu Tónlistarmiðstöðvar.




 

Umsóknarfrestur: Flytjendastyrkir Tónlistarsjóðs