Fara í efni
Umsóknarfrestur: Ferðastyrkir Tónlistarsjóðs

Ferðastyrkir eru veittir vegna ferðalaga til að sækja sér tækifæri erlendis og eru úr deild útflutnings.  Umsóknarfrestur er til kl. 23:59 laugardaginn 30. nóvember.

Upphæð styrkja:
75.000 kr. innan Evrópu
100.000 kr. utan Evrópu

Ferðastyrkir eru veittir á tveggja mánaða fresti. Umsóknarfrestir eru til og með; 1. febrúar, 1.apríl, 1.júní, 1.ágúst, 1.október og 1.desember.

Styrkir til tónlistarfólks og fagaðila sem vilja sækja sér tækifæri á stærri markaði, t.d. með tónleikaferðalögum, þátttöku í sendinefndum, sölusýningum og fagtónlistarhátíðum (e. showcase). Einnig eru veittir styrkir til tónskálda vegna frumflutnings á tónverkum.

Ekki er gerð krafa um að umsækjendur komi fram á ákveðnum lágmarksfjölda tónleika, úthlutunarnefnd metur gildi og umfang hvers verkefnis í heild sinni og í samhengi við markmið sjóðsins. Mest er hægt að sækja um ferðastyrki fyrir 8 manneskjur hverju sinni eða samtals 600.000 kr fyrir verkefni innan Evrópu og 800.000 kr. fyrir verkefni utan Evrópu.

Ekkert hámark er á fjölda ferðastyrkja sem umsækjendur geta fengið úthlutað yfir árstímabil.

Ekki er hægt að sækja um ferðastyrki vegna hljóðritunar erlendis.

Úthlutunarnefnd metur út frá markmiðum og áherslum, hér má finna nánari upplýsingar um mælikvarða.
Hér má finna allar nánari upplýsingar um styrkjaflokkinn og hlekk á umsóknargáttina.


Allar fyrirspurnir varðandi tónlistarsjóð → styrkir@icelandmusic.is og svo er kannski búið að spyrja og svara hér því sama og þú ert að velta fyrir þér.
Auk þess sem leita má ráðgjafar hjá starfsfólki SSNE varðandi umsóknarskrif, sendu línu á ssne@ssne.is

Þann 15. apríl 2026 kl. 15:00 eru jafnframt umsóknarfrestir Tónlistarsjóðs úr eftirfarandi deildum:


Hlutverk Tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist samkvæmt Tónlistarlögum og reglum um Tónlistarsjóð.

Sjóðurinn skal stuðla að kynningu á íslensku tónlistarfólki og tónsköpun þeirra hér á landi sem erlendis. Tónlistarsjóður heyrir undir menningar-, nýsköpunar og viðskiptaráðuneytið og er í umsýslu Tónlistarmiðstöðvar.




 

Umsóknarfrestur: Ferðastyrkir Tónlistarsjóðs