Fara í efni
Farsældardagur Farsældarráðs

Farsældardagur Norðurlands eystra

Farsældarráð Norðurlands eystra stendur fyrir Farsældardegi þann 4. september 2026 kl. 10:00–15:00 í Hömrum í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Dagurinn er vettvangur fyrir samtal og miðlun reynslu um farsæld barna, þar sem áhersla er lögð á samþættingu þjónustu, samstarf þvert á kerfi og eflingu stuðnings við börn og fjölskyldur á svæðinu.

Fjölbreytt og hagnýt dagskrá

Á dagskrá eru fjölbreytt erindi frá fulltrúum sveitarfélaga og ríkis þar sem fjallað verður um stöðu og þróun farsældar barna á Norðurlandi eystra. Meðal annars verður fjallað um:

  • virkni nærumhverfis og stuðningsnet barna
  • reynslu af innleiðingu farsældar í smærri sveitarfélögum
  • þjónustu- og ráðgjafaset­ur og samþættingu þjónustu
  • framlag heilbrigðis-, félags- og menntakerfa
  • reynslu foreldra af samræmdri þjónustu

Einnig verður haldið pallborð þar sem rætt verður um tækifæri og áskoranir í samþættingu þjónustu og hlutverk ólíkra aðila í að efla farsæld barna.
Dagskránna má finna hér.

Samvinna og sameiginleg sýn

Farsældardagurinn er hluti af áframhaldandi uppbyggingu farsældarsamfélags á Norðurlandi eystra og er ætlaður öllum sem starfa með börnum og fjölskyldum, sem og öðrum áhugasömum.

Fundarstjóri verður Þorleifur Kr. Níelsson, verkefnastjóri Farsældarráðs Norðurlands eystra.

Að dagskrá lokinni verða léttar veitingar í boði og gefst þátttakendum tækifæri til að eiga frekara samtal og efla tengslanetið.

Skráning

Skráning er hafin og áhugasamir eru hvattir til að tryggja sér þátttöku:
👉 Skráning á Farsældardaginn

Farsældardagur Farsældarráðs