Fara í efni

Ellefu glæný tónverk eftir börn og ungmenni frumflutt í Hofi

Ellefu glæný tónverk eftir börn og ungmenni frumflutt í Hofi

Afar velheppnaðir tónleikar Upptaktsins á Norðurlandi eystra, tónsköpunarverðlauna barna og ungmenna, fóru fram 7. apríl, í Menningarhúsinu Hofi. Upptakturinn í Hofi er samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Upptaktsins í Hörpu og er styrkt af Sóknaráætlun Norðurlands eystra.

Þar fluttu atvinnuhljóðfæraleikarar ellefu glæný tónverk eftir ungmenni á aldrinum 10-16 ára. Á tónleikunum fengu tónlistarstefnur að njóta sín, og áheyrendur fengu að heyra allt frá reggí yfir í háklassískan menúett. Þar má nefna rokk, popp, jazz, tölvuleikjatónlist og tónlist sem myndi sóma sér vel í hvaða kvikmynd sem er.

Það voru hátt í 100 manns sem fögnuðu ungu tónskáldunum tíu með glimrandi lófataki í lok tónleikanna.

„Við erum ríkt samfélag að eiga svo hæfileikarík og skapandi ungmenni í tónlist! Ég er líka afar stolt af því að Menningarfélag Akureyrar hafi skapað vettvang til að ýta undir sköpunarkraft ungmenna sem hafa áhuga á tónlist og ég bið þau einlæglega að halda áfram að semja og hvet þau sem langar til að prófa að semja verk að kýla á það. Allt getur gerst. Ég hlakka mikið til að sjá nýjar hugmyndir kvikna og streyma inn að ári í Upptaktinn 2025!“ segir Kristín Sóley jafnframt.

Útsetning verkanna var í höndum Kristjáns Edelsteins og Gretu Salóme, sem einnig var tónlistarstjóri Upptaktsins.

Tónleikarnir voru teknir upp bæði í hljóð og mynd til skrásetningar og fyrir ungmennin til eignar.

Lög þeirra munu birtast á vef RÚV innan skamms og verða í kjölfarið einnig aðgengileg á Youtuberás Upptaktsins á Norðurlandi eystra.

Getum við bætt síðuna?