Fara í efni
Vinnustaða­náms­sjóður

Fyrir hvern?

Fyrirtæki og stofnanir vegna vinnustaðanáms nema í iðnnámi eða öðru námi á framhaldsskólastigi þar sem vinnustaðanám og starfsþjálfun er skilgreindur hluti námsins. Markmið sjóðsins er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til þess að taka við nemendum og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.

Til hvers?

Að stuðla að eflingu vinnustaðanáms og fjölga tækifærum nema til starfsþjálfunar.

Umsóknarfrestur

20. nóvember 2020, kl. 16:00.

Sjá nánar um úthlutunarferlið.

EN

Hvert er markmiðið?

Vinnustaðanámssjóður er starfræktur samkvæmt lögum nr. 71/2012 um vinnustaðanámssjóð. Markmið styrkja til vinnustaðanáms eða starfsþjálfunar er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla. Styrkir til vinnustaðanáms eru veittir á grundvelli ákvörðunar um framlög á fjárlögum hvers árs.

Hverjir geta sótt um?

Rétt til að sækja um styrk eiga fyrirtæki og stofnanir sem uppfylla almenn skilyrði gildandi reglugerðar um námssamninga og starfsþjálfun um hæfi til þess að annast nemendur í starfsnámi. Þeir skulu hafa á að skipa hæfum tilsjónaraðila sem ber ábyrgð á námi nemanda á vinnustað.

Aðeins eru veittir styrkir til náms- eða starfsþjálfunar í greinum á grundvelli aðalnámsskrár framhaldskóla. Um er að ræða löggiltar iðngreinar og heilbrigðis-, félags- og umönnunargreinar.

Hvað er styrkt?

Veittir eru styrkir til þeirra sem uppfylla skilyrði; grunngjald fyrir hverja viku sem nemandi er í vinnustaðanámi. Styrkupphæðin fyrir árið 2018 hefur verið ákveðin kr. 14.000 á viku. Styrkur fyrir hvern nema er veittur að hámarki til 48 vikna fyrir árið allt, þó aldrei lengur en sem nemur þeim heildartíma sem krafist er í vinnustaðanámi fyrir viðkomandi nám.

Náms- eða starfsþjálfunarsamningur skal vera fyrirliggjandi fyrir hvern nema og skal í lok tímabils sýna fram á að nemar hafi sannanlega tekið þátt í vinnustaðanámi eða starfsþjálfun.

Styrkir til vinnustaðanáms eru veittir á grundvelli ákvörðunar um framlög á fjárlögum hvers árs. Fjárhæð styrkja ræðst því af framlögum á fjárlögum til málaflokksins og eftirspurn. Stjórn vinnustaðanámssjóðs tekur ákvörðun um veitingu styrkja og hefur eftirlit með nýtingu fjármuna sjóðsins.

Skilyrði úthlutunar

Almenn skilyrði gildandi reglugerðar um námssamninga og starfsþjálfun um hæfi til þess að annast nemendur í starfsnámi. Þeir skulu hafa á að skipa hæfum tilsjónaraðila með náminu og námssamningur og starfsþjálfunarsamningur skulu vera fyrirliggjandi. Sækja þarf um í gegnum umsóknarkerfi Rannís.

Vinnustaða­náms­sjóður