Fara í efni
Umsóknarfrestur: Styrkir til þróunarverkefna í nautgriparækt

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til þróunarverkefna í nautgriparækt, samkvæmt VIII. kafla reglugerðar nr. 430/2021 um almennan stuðning í landbúnaði.

Fjármunum til þróunarverkefna er ætlað að styðja við kennslu, rannsóknir, leiðbeiningar og þróun í nautgriparækt svo sem rannsókna- eða þróunarverkefni. Sérstök áhersla verður lögð á loftslagstengd verkefni við úthlutun. Fagráð í nautgriparækt veitir umsögn um allar umsóknir sem berast í þróunarsjóð hennar.

Umsókn skal skila rafrænt á mínum síðum (eyðublaðavef) Stjórnarráðsins.

Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2021.

Nánari upplýsingar veitir starfsfólk skrifstofu landbúnaðarmála í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Senda má fyrirspurnin á tölvupóstfang postur@anr.is

 

Umsóknarfrestur: Styrkir til þróunarverkefna í nautgriparækt