Fara í efni
Umsóknarfrestur: Samfélagssjóður Landsvirkjunar

Landsvirkjun tekur virkan þátt í samfélaginu og styður við málefni og verkefni sem hafa jákvæð samfélagsleg áhrif.

Sjóðurinn styður verkefni sem hafa breiða samfélagslega skírskotun og leggur sérstaka áherslu á verkefni sem hafa jákvæð áhrif á nærsamfélög fyrirtækisins.

Tekið er á móti umsóknum allt árið en úthlutað er úr sjóðnum þrisvar á ári. Umsóknarfrestur er til 31. mars, 31. júlí og 30. nóvember ár hvert.

Samfélagssjóður úthlutar að hámarki 12 milljónum króna í þremur úthlutunum. Að jafnaði eru styrkir á bilinu 100 til 500 þúsund og aldrei hærri en ein milljón króna. Stefna sjóðsins er að styðja verkefni sem hafa breiða samfélagslega skírskotun og leggur sérstaka áherslu á verkefni sem hafa jákvæð áhrif á nærsamfélag fyrirtækisins.

Styrkir eru veittir:

  • einstaklingum, hópum, sjálfseignarstofnunum og frjálsum félagasamtökum sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni
  • sjóðurinn veitir styrki til skilgreindra verkefna og atburða
  • sjóðurinn veitir ekki rekstrarstyrki

Verkefni sem koma einkum til greina:

  • Verkefni á sviði umhverfis-, náttúru- og auðlindamála
  • Listir, menning og menntun
  • Forvarnar- og æskulýðsstarf
  • Heilsa og hreyfing

Verkefni sem alla jafna koma ekki til greina eru:

  • Rannsóknir og vísindi (Orkurannsóknasjóður veitir styrki til námsfólks og rannsóknarverkefna á vegum háskóla, stofnana, fyrirtækja og einstaklinga)
  • Almenn útgáfa, svo sem bóka, geisladiska og kvikmynda
  • Námsstyrkir
  • Utanlandsferðir

Umsóknir og fyrirspurnir: 

Umsóknarfrestur: Samfélagssjóður Landsvirkjunar