Umsóknarfrestur: ferðastyrkir miðstöðvar íslenskra bókmennta
Höfundar frá Íslandi, erlend forlög og stjórnendur bókmennta- og menningarhátíða geta sótt um ferðastyrki í tengslum við útgáfu og kynningu á þýddum verkum eftir íslenska höfunda erlendis. Ferðastyrkurinn er veittur vegna flugs eða lestarferða á milli landa, ekki vegna gistingar eða annars dvalarkostnaðar.
Ferðastyrkir:
- Umsóknarfrestur er þrisvar á ári; 15. janúar, 15. maí og 15. september.
- Umsóknareyðublaðið er aðgengilegt hér á rafrænu formi fjórum vikum fyrir auglýstan umsóknarfrest.
- Hægt er að skoða fyrri úthlutanir hér.
Umsókn skulu fylgja eftirfarandi gögn:
- Kynning á höfundi og útgefnum verkum hans.
- Afrit af boðsbréfi eða samningi vegna fyrirhugaðrar ferðar.
- Heimilt er að sækja um styrk eftir að ferð hefur verið farin, þó eigi síðar en átta vikum eftir að ferð er lokið.
- Svör við umsóknum um ferðastyrki berast með tölvupósti 4 til 6 vikum eftir að umsóknarfrestur rennur út.
Nánari upplýsingar:
- Allt kynningarefni s.s. bæklingar, dagskrár, rafrænt efni o.s.frv. sem tengist viðburðinum skal merkt með merki Miðstöðvar íslenskra bókmennta.
- Sjá heimasíðu Miðstöðvar íslenskra bókmennta