Fara í efni
Umsóknarfrestur: Atvinnumál kvenna

Vinnumálastofnun/félags-og húsnæðismálaráðuneytið auglýsir styrki til atvinnumála kvenna árið 2026 lausa til umsóknar!
Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni eru kr. 35.000.000 og er hámarksstyrkur kr. 4.000.000.
Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum.

  • • Verkefnið sé í meirihluta eigu konu/kvenna (51%) og stjórnað af konu.
  • • Verkefnið feli í sér nýnæmi eða nýsköpun af einhverju tagi.
  • • Verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar.
  • • Viðskiptahugmynd sé vel útfærð.
  • • Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar (600.000), ásamt styrkjum til markaðssetningar og vöruþróunar að hámarki 4.000.000.

Hægt er að sækja um styrk fyrir helmingi af kostnaði verkefnis, nema ef sótt er um styrk til gerðar viðskiptaáætlunar.
Umsóknarfrestur er frá 9.febrúar til og með 16.mars og skal sækja um rafrænt á heimasíðunni www.atvinnumalkvenna.is

Sérstök áhersla verður lögð á að ná til kvenna af erlendum uppruna sem hafa hug á að vinna viðskiptahugmyndir sínar eða byggja upp fyrirtæki sín.

Frekari upplýsingar hér

Umsóknarfrestur: Atvinnumál kvenna