Aðgerðabanki loftslagsmála
ðgerðabanki RECET er hagnýtt verkfæri fyrir sveitarfélög til að móta aðgerðaáætlanir í loftslagsmálum. Þetta geta sveitarfélög nýtt sem grunn að eigin aðgerðaráætlunum eða einfaldlega sem innblástur. Áhersla er lögð á raunhæfar lausnir sem hægt er að aðlaga að mismunandi aðstæðum. Aðgerðirnar spanna flokka orkuskipta, orkunýtni, breyttra ferðavenja, fræðslu og aukna sjálfbærni í rekstri sveitarfélaga.
Markmiðið með aðgerðabankanum er að auðvelda sveitarfélögum gerð aðgerðaáætlana í loftlagsmálum, sem er lögbundin skylda þeirra. Aðgerðabankinn styður við upplýsta ákvarðanatöku og skapa sameiginlegan vettvang fyrir þekkingu og góðar lausnir í þessum efnum.
Í aðgerðabankanum er gefin lýsing á markmiði aðgerðar og hugmynd um það hvernig hrinda má henni í framkvæmd. Þá er tilgreindur mögulegur ábyrgðaraðili og hvernig flokka megi framkvæmd aðgerðarinnar í stjórnsýslu sveitarfélagsins. Þá er gerð tilraun til að tengja þessar aðgerðir við aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum, sjá co2.is.