Fara í efni
Umsóknarfrestur: Tónlistasjóður

Hlutverk Tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslensku tónlistarfólki og tónsköpun þess skv. lögum nr. 76/2004 og reglum um Tónlistarsjóðs nr. 125/2005 .

Veittir eru styrkir til almennrar tónlistarstarfsemi og til kynningar og markaðsetningar á tónlist og tónlistarfólki. Styrkir úr Tónlistarsjóði skulu veittir til ákveðinna verkefna og að jafnaði ekki lengur en til eins árs í senn. Að jafnaði er hvorki gert ráð fyrir styrkveitingum til rekstrar og umsýslu samtaka, fyrirtækja og stofnana, sem hljóta regluleg rekstrarframlög, né til verkefna eða viðburða sem þegar hafa átt sér stað.

Hverjir geta sótt um?

  • Fyrir hverja?
    Tónlistarfólk, hljómsveitir, kóra og aðra er koma að tónlistarflutningi.

  • Til hvers?
    Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild. Tónlistardeild veitir styrki til almennrar tónlistarstarfsemi, en markaðs- og kynningardeild veitir styrki til kynningar og markaðssetningar á tónlist og tónlistarfólki hér á landi og erlendis.

Umsóknarfrestur er 1. nóvember kl 15:00. Umsóknum skal skilað í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís (sjá leiðbeiningar). 

Nánari upplýsingar veita Ragnhildur Zoëga, s. 515 5838 og Óskar Eggert Óskarsson, s. 515 5839. Tekið er á móti fyrirspurnum á tonlistarsjodur(hja)rannis.is

 

 

 

Umsóknarfrestur: Tónlistasjóður