Umsóknarfrestur: Sviðslistasjóður
Sviðslistaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki til starfsemi atvinnusviðslistahópa.
Í umsókn er beðið um lýsingu á verki, gildi þess, feril listamanna og rökstudda fjárhags- og tímaáætlun.
Hafi umsækjandi hlotið styrk úr sjóðnum áður, verður umsókn aðeins tekin til umfjöllunar ef framvinduskýrslu/lokaskýrslu hefur verið skilað vegna fyrri verkefna.
Athugið að umsókn í Sviðslistasjóð getur gilt sem umsókn fyrir þátttakendur í launasjóð sviðslistafólks (listamannalaun).
Á vef Sviðslistasjóðs eru umsóknar- og skýrsluform, matskvarði, áherslur stjórnar, lög og reglugerð og leiðbeiningar um gerð umsókna.