Loftslags- og orkusjóður hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús. Styrkjunum er ætlað að styðja við uppbyggingu hleðsluinnviða á sameiginlegum bílastæðum fjöleignarhúsa og auðvelda húsfélögum sem standa frammi fyrir sérstaklega kostnaðarsamri uppbyggingu á slíkum innviðum að ráðast í framkvæmdir.
Styrkirnir eru liður í sértækum aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna hækkandi heimsmarkaðsverðs olíu og aukinnar óvissu á alþjóðlegum orkumörkuðum vegna stríðsátaka við Persaflóa sem kynntar voru á fréttamannafundi 10. apríl síðastliðinn. Aðgerðirnar miða annars vegar að því að verja heimili fyrir áhrifum verðhækkana og hins vegar að því langtíma verkefni að gera sem flestum kleift að slíta sig frá dælunni og nota hreina íslenska orku í stað innflutts jarðefnaeldsneytis. Vegna hins síðarnefnda hefur Loftslags- og orkusjóður þegar auglýst eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar hraðhleðslustöðva fyrir rafbíla um allt land með það að markmiði að loka gatinu í hraðhleðsluneti á vegum landsins. Þá verða styrkir vegna hleðsluinnviða við gististaði auglýstir innan skamms. Samhliða vinna stjórnvöld að breytingum sem eiga að tryggja einfaldara og samræmdara greiðslufyrirkomulag við hleðslu rafbíla.
Opnað verður fyrir umsóknir 22. maí og er umsóknarfrestur vegna styrkjanna til 1. október kl. 15:00. Frekari upplýsingar má finna á vef Loftslags- og orkusjóðs, sem fer með umsjón með auglýsingu og umsýslu styrkjanna.
Styrkhæf eru húsfélög fjöleignarhúsa sem eru með 8 íbúðir eða fleiri og þar sem byggingarleyfi var gefið út áður en breyting á byggingarreglugerð nr. 112/2012 tók gildi 20. júní 2018. Fjölbýlishús sem hafa þegar komið upp hleðslustöðvum á sameiginlegum bílastæðum eru ekki styrkhæf.
Styrkir eru m.a. veittir fyrir lagnaleiðir frá rafmagnstöflu að hleðsluinnviðum við sameignarstæði og fyrir stækkun, færslu eða nýja heimtaug fjölbýlishússins. Styrkupphæð getur numið allt að 5 milljónum króna á hvert verkefni, en þó aldrei meira en 50% af heildarkostnaði.
Stuðningur við uppbyggingu hleðsluinnviða við fjölbýlishús – handbók