Fara í efni
Sóknarstyrkir

Fyrir hverja?

Stofnanir, fyrirtæki, vísindafólk og fræðimenn sem sækja um í alþjóðlega rannsóknasjóði. Forgangur er veittur þeim sem sækja um í Horizon 2020 rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB, en mögulegt er að styrkja annað samstarf samkvæmt ákvörðun stjórnar sjóðsins.

Til hvers?

Til undirbúnings umsókna í alþjóðlega rannsóknasjóði, einkum Horizon 2020.

Umsóknarfrestur

Einu sinni á ári, í tengslum við umsóknarfresti Horizon 2020.

Næsti umsóknarfrestur er til 20. október 2020, kl. 16:00. Sótt er um í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís.

Hvert er markmiðið?

Markmiðið er að auðvelda íslenskum aðilum að taka þátt í alþjóðlegum rannsóknaverkefnum með sókn í erlenda sjóði. Stjórnir Rannsóknasjóðs og Tækniþróunarsjóðs leggja til allt að 20 m.kr. á árinu 2019 til þess að styrkja undirbúning alþjóðlegs vísinda- og rannsóknasamstarfs með íslenskri þátttöku. Forgangur er veittur umsóknum vegna undirbúnings umsókna í Horizon en mögulegt er að styrkja annað samstarf samkvæmt ákvörðun stjórnar sjóðsins.

Hverjir geta sótt um?

  • Stofnanir
  • Fyrirtæki
  • Vísindafólk og fræðimenn sem taka þátt í að undirbúa umsókn í alþjóðlega rannsóknasjóði.

Forgangur er veittur þeim er sækja um í Horizon 2020 rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB.

Hvað er styrkt?

  • Ferðastyrkur (200 þúsund)

    Ferðastyrkur miðast við fargjald á almennu flugfarrými auk dagpeninga samkvæmt auglýsingu fjármálaráðuneytisins á hverjum tíma. Hámarksstyrkur er 200.000 kr.

  • Ráðgjafastyrkur (250 þúsund)

    Styrkur vegna umsóknarskrifa og ráðgjafaþjónustu er að hámarki 250.000 og miðast við að ráðgafi hafi verið fenginn til að skrifa umsókn eða starfsmaður stofnunar hafi eytt umtalsverðum tíma til umsóknarskrifa.

  • Umsóknarstyrkur vegna undirbúnings verkefna með íslenskri verkefnastjórn (500 þúsund)

    Umsóknarstyrkur vegna undirbúnings alþjóðlegra samstarfsverkefna með íslenskri verkefnastjórn (coordination) er að hámarki 500.000 kr. Athugið að íslenskur aðili þarf að leiða allt verkefnið ekki aðeins íslenska hlutann.

Skilyrði úthlutunar

Sóknarstyrkir eru greiddir eftir að umsókn hefur verið send inn í alþjóðlegan rannsóknasjóð og alþjóðasviði Rannís hafa borist eftirfarandi gögn:

  • Staðfesting á móttöku umsóknar frá viðkomandi rannsóknasjóði
  • Afrit af umsókn til viðkomandi sjóðs (þar sem nafn umsækjenda kemur fram)
  • Staðfesting á útlögðum ferðakostnaði

Vinsamlega athugið:

Engin ein stofnun getur fengið úthlutað meira en 20% af pottinum eða 4 mkr. Tekið er tillit til stærðar Háskóla Íslands og honum er skipt niður í 5 stofnanir/svið í samræmi við sviðaskiptingu HÍ og hvert svið HÍ getur því ekki fengið meira en 20% af heildarpottinum.

Ef umsóknir um sóknarstyrki fara yfir 20 mkr, þrátt fyrir niðurskurð sem byggður er á 20% reglunni, þá kemur til flatur niðurskurður á allar umsóknir þar til að 20 mkr. markinu er náð.

Ef um er að ræða tveggja þrepa umsókn, er aðeins veittur styrkur einu sinni.

Ef um er að ræða fleiri en einn íslenskan umsækjenda í verkefni, þá skal sá aðili sem er með stærstan styrkhlut í Evrópuverkefninu af íslenskum umsækjendum sækja um sóknarstyrkinn.

Mögulegt er að sækja um allar styrktegundir í einu að uppfylltum skilyrðum.

Sóknarstyrkir